11.maí. Vertíðarlok 2025

Þá er runninn upp dagurinn sem áður fyrr skipti miklu máli fyrir þá sjómenn


sem réru yfir veturinn.

11.Maí
11.maí markar lok vetrarvertíðar, og var þessi dagur meðal annars merktur á dagatölum sem lokadagurinn.

í dag þá í huga flstra þa´er þetta bara venjulegur dagur,  bara 11.maí og ekkert meira enn það.

Það var nefnilega þannig má segja frá um 1950 og svo til að 2000 að þá var oft kapp á milli 

báta um hver yrði aflahæstur þegar að deginum 11.maí kæmi.

í dag er þetta ekki svoleiðis.

20.ár
undanfarin 20 ár þá hef ég nú reyndar fjallað mikið um þennan dag, og skrifað greinar, fyrst í Fiskifréttir

og síðan 2017 hef ég skrifað um þetta sjálfur og gefið út,  Vertíðaruppgjörin,

síðan ég skrifaði um fyrstu vertíðina árið 2005, þá samhliða 2005 þá fjallaði ég um vertíðina 1955, semsé 50 ár aftur í tímann

þetta munstur hef ég haldið síðan þá, alveg til 2022 þegar að ég fór að fjalla um þrjú ár

semsé 2022.1992..1972.  

Nordglobal
núna er komið 2025, og hef ég unnið að árunuim 1995, 1975, en þetta 1975 er merkilegt ár,  fyrir það fyrsta þá er þetta fæðingarár mitt

það er líka annað mjög merkilegt við 1975, en þá urðu 2 stór snjóflóð fyrir austan sem urðu til þess að verksmiðjurnar á Seyðisfirði og Neskaupstað voru 

ónothæfar.  í staðinn þá kom til landsins norsk loðnubræðsluskip sem hét Nordglobal, og framan þá lá það skip inná Reyðarfirði 

og færði sig síðan suður og lá þá við akkeri í Hvalfirði og bræddi loðnu,

mjög margir loðnubátar lönduðu í Nordglobal og þegar að loðnuvertíðinni 1975 lauk þá var einungis Vestmannaeyjar með meiri loðnuafla 


 Saxhamar SH
Saxhamar SH sem er mynd af hérna með þessum pistli, kemur við sögu öll þessi þrjú ár, en aldrei með sama nafnið 

árið 1975 er báturinn á Loðnuveiðum og hét þá Hrafn Sveinbjarnarson GK og fór síðan yfir á net

árið 1995 þá var báturinn líka á loðnuveiðum og hét þá Sæljón SU, og fór síðan yfir á netin

árið 2025 þá heitir báturinn Saxhamar SH og að þessu sinni engar loðnuveiðar, heldur net og dragnót

 Dagsetning?
.Ég er ekki kominn með dagsetningu á hvenær vertíðaruppgjörið 2025-1995-1975 kemur út, en vonandi klárast það núna seinnipartinní maí.



SAxhamar SH mynd Jón Páll Ásgeirsson