193 tonn af þorski og ýsu á loðnuvertíðinni 2026
Þá er nýjasti listi yfir uppsjávarskipin kominn hérna á Aflafrettir.is
hún var stutt og góð loðnuvertíðin sem var hérna við land í vetur, og alls komu á land um 181 þúsund tonn af loðnu
en það var líka töluvert að aukaafla sem kom með bátunum sem veiddu loðnu
og langmest kom af þorski í afla hjá loðnuskipunum
148 tonn af þorski
því alls komu skipin samtals með 148 tonn af þorski í land
og tvo skip voru með áberandi mestan þorskafla
því að Sigurður VE var með 33 tonn af þorski og Börkur NK var með 24 tonn af þorski
Sigurður VE hæstur í þorski
Sigurður VE kom snemma í mars með 1072 tonn af loðnu til Vestmannaeyja
en með því var líka ansi mikið magn af ýsu og þorski
því að báturinn var með 24 tonn af þorski og 8 tonn af ýsu með í aflanum
Börkur NK kom með 23 tonn af þorski í einni loðnu ferðinni.
Tvö önnur loðnuskip voru með yfir 10 tonn af þorski
Beitir NK var með 12,5 tonn af þorski og Víkingur AK var með 12,4 tonn af þorski
Ýsan
Fyrir utan þorskinn þá var líka töluvert af ýsu sem loðnubátarnir komu með
því að þeir komu alls með 45 tonn af ýsu og hæstur af þeim var aftur Sigurður VE
sem var samtals með 9,6 tonn af ýsu
en hvað er gert við þennan afla sem samtals 193 tonn af þorski og ýsu
jú hann fór allur í bræðslu

Sigurður VE mynd Kiran Jonas