55 milljarða aflaverðmæti frystitogaranna árið 2025

 Í gegnum árin þá hef ég birt hérna á Aflafrettir.is lokalistann fyrir aflann hjá frystitogurnum og samhliða því þá hef ég líka birt tölur um aflaverðmæti skipanna ár hvert.


Í enda janúar á þessu ári þá birti ég lokalistann yfir aflann hjá skipunum fyrir árið 2025


og kom þá í ljós að fjögur skip veiddu yfir 10 þúsund tonn árið 2025


það voru Sólborg RE, Baldvin Njálsson GK, Sólberg ÓF og Þerney RE sem var aflahæstur.


Reyndar í tilfelli Þerneyjar RE þá var skipið með tölurvert af makríl og gullaxi eða um 7100 tonn.


Verðmæti í CIF, FOB og EXW

Það tekur alltaf sinn tíma að fá tölur um aflaverðmæti frystitogaranna, en þær eru loksins komnar í hús og því er hægt að birta þar.


Rétt er að hafa í huga að tölurnar berast til mín í þremur útgáfum, það er EXW, FOB og síðan CIF, reyndar er aðeins sitt skip sem birtir sínar tölur í CIF og er togarinn Sólberg ÓF.


Til að fá réttan samanburð á aflaverðmæti skipanna þá er ég búinn að reikna EXW og FOB verðmætin upp í CIF á öll skipin nema Sólberg ÓF og þannig er hægt að sjá stöðuna miðað við CIF og líka meðalverðið.


Hérna að neðan eru fjórar töflur.


Fyrsta er aflaverðmæti skipanna reiknað í CIF


 Síðan er meðalverð skipanna


þar á eftir er síðan heildarafli skipanna

og að lokum Aflaverðmæti skipanna miðað við FOB, EXW og CIF.


Mikil verðmætaaukning milli ára

Árið 2025 var mjög gott gagnvart aflaverðmæti því að heildaraflaverðmæti skipanna 12 var alls 55,5 milljarðar króna (CIF). Er þetta mun meira aflaverðmæti enn var árið 2024, en þá voru skipin með samtals 43 milljarða (CIF) í verðmæti svo þetta er mikill verðmætismunur á milli ára.  Þetta er aukning uppá um tæp 23% milli ára


Árið 2024 þá voru 13 skip á veiðum og hætti eitt þeirra, Örfirsey RE og árið 2025 þá voru eftir 12 skip og hætti þá líka eitt skipanna, og var það Vigri RE. Bæði þessi skip voru gerð út af Brim ehf. En Þerney RE og Sólborg RE hafa tekið við þeirra hlutverki.


Fimm skip með yfir 5.milljarða ( CIF)


Ef við byrjum á aflaverðmæti skipanna þá voru fimm skip sem voru með yfir 5 milljarða (CIF) í aflaverðmæti árið 2025 og til samanburðar þá var aðeins eitt skip sem var með yfir 5 milljarða í aflaverðmæti árið 2024.


Kemur engum á óvart en Sólberg ÓF var með mesta aflaverðmæti 8,95 milljarðar ( CIF) og 13700 tonna afla. 


 Baldvin Njálsson GK kom þar á eftir en hann var líka í öðru sæti árið 2024. 


 Síðan kemur Þerney RE , en hann var sem fyrr segir aflahæsti frystitogarinn með um 15400 tonna afla og af því 7100 tonn af makríl og gullaxi.


Togarnir úr Grindavík áttu mjög gott ár en bæði Tómas Þorvaldsson GK og Hrafn Sveinbjarnarsson GK voru með yfir 5 milljarða ( CIF) í aflaverðmæti árið 2025.


 Meðalverð mun hærra árið 2025 en 2024


Ef við lítum á meðalverð skipanna þá kemur í ljós að fjögur skip voru með yfir 600 krónur í meðalverð og er nokkuð athyglisvert að skoða hvaða skip það voru.


Hæstur var Sólberg ÓF með 653 krónur en þar á eftir kom Júlíus Geirmundsson ÍS með 650 krónur, Júlíus var töluvert að veiða grálúðu og þorsk og það skýrir þetta háa meðalverð


þar á eftir komu síðan Hrafn Sveinbjarnarsson GK og Tómas Þorvaldsson GK sem báðir voru með yfir 600 krónur í meðalverð enda voru þeir töluvert að veiða þorsk.


Þerney RE rekur lestina með 388 krónur í meðalverð og þetta lága meðalvert er útaf makrílnum og gullaxinum sem skipið var að veiða.


Eins og sést á listanum um meðalverð þá voru sjö skip sem voru með yfir 500 krónur í meðalverð og þar af fjögur með yfir 600 krónur í meðalverð 


en árið 2024 var ekkert skip með yfir 600 krónur í meðalverð og aðeins þrjú skip sem voru með yfir 500 krónur í meðalverð. Svo að munurinn á milli ára er mjög mikill.



 Aflaverðmæti frystitogaranna árið 2025 ( CIF) Milljarðar

Sæti Nafn Aflaverðmæti CIF
12 Vigri RE 1.41
11 Snæfell EA 310 2.79
10 Arnar HU 3.54
9 Guðmundur í Nesi RE 3.54
8 Júlíus Geirmundsson ÍS 3.58
7 Blængur NK 4.36
6 Sólborg RE 27 4.88
5 Hrafn Sveinbjarnarsson GK 5.01
4 Tómas Þorvaldsson GK 10 5.41
3 Þerney RE 1 5.96
2 Baldvin Njálsson GK 6.08
1 Sólberg ÓF 8.95

Meðalverð skipanna árið 2025
Sæti Nafn Meðalverð
12 Þerney RE 1 388
11 Vigri RE 460
10 Arnar HU 464
9 Sólborg RE 27 487
8 Snæfell EA 310 530
7 Guðmundur í Nesi RE 539
6 Blængur NK 558
5 Baldvin Njálsson GK 579
4 Hrafn Sveinbjarnarsson GK 607
3 Tómas Þorvaldsson GK 10 620
2 Júlíus Geirmundsson ÍS 650
1 Sólberg ÓF 653

Heildarafli skipanna árið 2025 
SætiÁðurNafnAfliLandanirMest
11Þerney RE 115376.8191191.9
22Sólberg ÓF13713.7121552.0
33Baldvin Njálsson GK10520.6121051.6
44Sólborg RE 2710020.915961.8
57Tómas Þorvaldsson GK 108731.911936.9
65Hrafn Sveinbjarnarsson GK8250.915724.6
78Blængur NK7817.111971.2
86Arnar HU7628.2131045.8
99Guðmundur í Nesi RE6564.813575.6
1011Júlíus Geirmundsson ÍS5505.313617.3
1110Snæfell EA 3105271.811565.5
1212Vigri RE3067.96764.8


 Verðmæti skipanna í FOB, CIF og EXW, Raðað eftir stafrófsröð
Nafn Aflaverðmæti FOB-CIF-EXW
Arnar HU 3.40 FOB
Baldvin Njálsson GK 5.84 FOB
Blængur NK 4.17 FOB
Guðmundur í Nesi RE 3.40 FOB
Hrafn Sveinbjarnarsson GK 4.81 FOB
Júlíus Geirmundsson ÍS 0.44 FOB
Snæfell EA 310 2.69 FOB
Sólberg ÓF 8.95 CIF
Sólborg RE 27 4.69 FOB
Tómas Þorvaldsson GK 10 5.20 EXW
Vigri RE 1.35 FOB
Þerney RE 1 5.73 FOB

Sólberg ÓF Mynd Guðmundur St VAldimarsson
Baldvin Njálsson GK mynd Bergþór Gunnlaugsson