588 tonna humarafli á Akranesi sumarið 1963

Ég hef verið að skrifa niður tölur frá árinu 1961 og kominn langleiðina með það og fór yfir í árið 1963


er þar að reikna tölur úr upprunalegum aflaskýrslum.

Er núna að reikna tölur frá Akranesi árið 1963, og ætla að fara með ykkur í ferðalag í humarveislu á Akranesi árið 1963.

Humar árið 2026
Núna árið 2026 er enginn humar veiddur og hefur ekki verið veiddur humar hérna á Íslandi núna í um 3 ár,

frá því að humarveiðar hófust hérna við land árið 1939

og öll árin fram til alda móta þá var humarinn að mestu einungis veiddur frá miðjum maí og sirka fram í september.

þegar að leið eftir aldamótin þá fóru humarbátarnir sumir að byrjar humarveiðar í apríl og fóru á þeim fram í október og síðustu

árin sem humar var veiddur var jafnvel verið að veiða humar allt árið.

 Akranes humar árið 1963
en förum til Akranes árið 1963 og skoðum hvað var um að vera þar í humarveiðum,

því jú það var ansi mikið um að vera því að humarafli sem kom á land á Akranesi frá miðjum maí og fram í miðjan

september var alls 588 tonn.  

 hátt í 500 tonn af humri hjá HB
og stór hluti af þessum humarafla fór til vinnslu hjá Haraldi Böðvarssyni eða HB því að tæp 490 tonn af humri voru unnin þar.

 9 bátar
það voru alls 9 bátar sem lönduðu humri á Akranesi árið 1963 og allir bátarnir nema einn lagði upp afla hjá HB

Ólafur Magnússon AK 102 landaði sínum humarafla hjá Haferni HF á Akranesi.

Lítum á bátanna.  

Ólafur Magnússon AK 102 var alls með 286 í heildarafla frá miðjum maí og til miðjan september og af því var humar 91 tonn.

Júlí mánuður var ansi stór hjá bátnum en þá landaði báturinn 109 tonn í aðeins 10 róðrum og var humar af því 25 tonn.

og var Ólafur Magnússon AK fjórði aflahæsti humarbáturinn á Akranesi árið 1963, enn var með fiski aflahæsti báturinn.

enn meðafli hjá Ólafi Magnússyni AK var mjög mikið að karfa í aflanum

Hjá HB voru ansi margir bátar
Vísir KE 70 landaði í eitt skipti í ágúst 4,7 tonnum og þar af var humar 3,5 tonn 
Gunnar Hámundarsson GK landaði líka í eitt skipti líka í ágúst og kom með 4,9 tonn og af því var humar 3,1 tonn.

Hrefna EA 33 var á humarveiðum frá Akranesi og var samtals með 174 tonna afla og af þeim afla var humar 47 tonn.

Tveir bátar með sama nafn 
Það voru tveir bátar sem réru á humri frá Akranesi sumarið 1963 sem hétu sama nafni. Ásbjörn 

Sá fyrri sem við skoðum hét Ásbjörn ÍS 12 og hann landaði alls 134 tonnum og af þeim afla var humar 55 tonn

Þrír efstu humarbátarnir hjá HB sumarið 1963 voru allt heimabátar,

og Svanur AK 101 var samtals með 208 tonna afla og af  þeim afla var humar 96 tonn í alls 28 róðrum 

Ásmundur AK með yfir 100 tonn, næst hæstur
Ásmundur AK 8 var annar af tveimur bátum á Akranesi sem voru með yfir 100 tonn af humri, og verður það að teljast ansi góð humarveiði yfir sumartímann

Ásmundur AK 8 var alls með 195 tonn í 22 róðrum og af þeim afla var humar 101 tonn  og má geta þess

að frá 26 mai og til loka júni þá landaði báturinn 47 tonnum af humri í 11 róðrum

 Ásbjörn AK aflahæstur
aflahæsti humarbáturinn á Akranesi sumarið 1963 var hinn Ásbjörn AK

Ásbjörn AK 90 sem var með í heildina 235 tonn í 29 róðrum og af þeim afla var humar 107 tonn 

Mokveiði var hjá bátnum frá 25.maí til loka júní því þá landaði báturinn 52 tonnum af humri.

Allar humartölur hérna að ofan, þessi 588 tonn miðast við heilan humar.

semsé ansi gott humarár á Akranesi árið 1963, en samtals komu á land af þessum bátum um 1240 tonn og humar af því 588 tonn

núna eins og við vitum, engin humarveiði 

Ólafur Magnússon AK mynd Hafsteinn Jóhansson

ásmundur AK mynd Ólafur Frímann Sigurðsson



Kæru Lesendur.
kt 200875-3709
Bók 0142-15-380889
Takk kærlega fyrir
Gísli Reynisson