87 bátar og togarar í Vestmannaeyjum í mars árið 1983.


Í 1.Apríl " Fréttinni" sem birtist hérna á Aflafrettir.1.apríl þá var talað töluvert um Vestmannaeyjar og þar var skrifað

að aðeins einn netabátur og fáir togarar eru að landa í Eyjum núna.

Árið 2026
Ef horft er á Mars mánuðuinn þá voru nokkrir færabátar sem lönduðu þar, línubáturinn Blíða VE.  dragnótabáturinn Maggý VE, 

netabáturinn Kap VE landaði í sex skipti, og var hann eini netabáturinn sem landaði í eyjum.

síðan voru nokkrir togarar, Drangavík, VE, Breki VE, Vestmannaey VE og Bergey VE komu með nokkrar landanir.

Auk þess þá var loðnu landað í Eyjum núna í mars árið 2026.

 MArs árið 1983
En hvernig var þetta fyrir rúmum 40 árum siðan

mars mánuður árið 1983.  og þessi mars mánuður var ansi sérstakur, því að þá var loðnubann í gangi

og loðnubátarnir voru á rækju, trolli, línu og netum,  reyndar um haustið árið 1983 þá voru loðnuveiðar leyfðar en fá skip fóru þá á loðnu,

 87 bátar í Vestmanneyjum í mars árið 1983
í Vestmannaeyjum í mars árið 1983 var ansi mikið um að vera því að

87 bátar og togarar sem lönduðu afla í Vestmanneyjum og samtals lönduðu þau alls 9450 tonnum í 805 löndunum

mest voru það neta og færabátar

 Einn línubátur
 og aðeins einn bátur var á línu,  Hvítingur VE 21 sem var með 7,2 tonn í 5 róðrum.

 Færabátar
Af færabátunum þá var Ísak VE 3 með 7,9 tonn í 8 róðrum
af Færabátunum þá var  Bensi VE 234 með 7,6 tonn í 8 róðrum
Kristbjörg SVeins VE 71 var með 6,6 tonn í 7 róðrum.
Skúmur VE 34 var með 5,6 tonn í 7
Byr VE 1 var með 5,4 tonn í 8

 32 netabátar
32 bátar voru á netum í Vestmannaeyjum í mars árið 1983

og kemur ekki á óvart hvaða bátur var hæstur í Eyjum þennan mánuð, en það var Þórunn Sveinsdóttir VE með 484 tonn í 14 róðrum
Sighvatur Bjarnason VE var með 383 tonn í 12 og mest 47 tonn
Gjafar VE 290 tonn í 14 og mest 39 tonn
Valdimar SVeinsson VE var með 285 tonní 24

 Enginn loðnuveiði, loðnubátar á netum
Þar sem enginn loðnuveiði var í gangi þá voru nokkrir loðnubátar frá Vestmannaeyjum á netum þessa vertíð
Sighvatur Bjarnason VE var einn af þeim, hinir voru til dæmis, Sæbjörg VE 56 með 271 tonní 14
Gullberg VE 256 tonní 22 og mest 42 tonn.
Bergur VE 44 með 248 tonn í 15 róðrum 
Ísleifur VE 163 tonn í 16 róðrum
Guðmundur VE 57 tonn í 2 rórðum 

 Troll og togarar
Síðan eru það trollbátarnir og togarnir.

Einn af þeim var reyndar bátur sem var vanalega á loðnu, Huginn VE var á trolli og landaði 367 tonnum í 4 róðrum og mest 130 tonn í einni löndun 

Aðrir trollbátar voru til dæmis Nanna VE 119 tonn í 10 og mest 20 tonn
Draupnir VE 550, með 150 tonn í 10 róðrum og mest 32 tonn
Sigurbjörg VE 62 með 189 tonn í 19

Frár VE 280 tonn í 11 og mest 52 tonn
Baldur VE 181 tonní 14 róðrum

Björg VE 218 tonní 14 róðrum

og síðan voru það togarnir
Vestmanney VE með 462 tonní 3
Breki VE 371 tonní 2
Klakkur VE 432 tonní 3
Sindri VE 491 tonní 4

Semsé það var mjög mikið um að vera í Vestmanneyjum í mars árið 1983.
87 bátar og togarar og 805 landanir.

Hérna kemur svo listi yfir alla báta og togara sem lönduðu í Vestmanneyjum í mars árið 1983.

Sknr báts          Nafn
1190 Máni BA 14 færi
3321 Byr VE 1 færi
2752 Skúmur VE 34 færi
2549 Tvistur VE 222 færi
1284 Bensi VE 234 færi
2507 Hlýri VE 305 eða sknr 305 færi
2677 Kristbjörg Sveins VE 71 færi
2785 Elding VE 427 færi
2532 Bjarnveig VE 72 færi
2563 Matta VE 36 færi
2518 Uggi VE 272 færi
2503 Barði VE 319 færi
2535 Rúna VE 338 færi
2843 Díana VE 43 færi
2529 Einfari VE 308 færi
2510 Linda VE 320 færi
2808 Latur VE 18 færi
2505 Fjarki VE 444 færi
3029 Bravo VE 160 færi
2645 Víxill VE færi
2508 Ísak VE 3 trilla færi
2519 Venus VE trilla færi
2616 Hannes Lóðs VE 200 færi
2811 Smáey VE 12 færi
2828 Gaui Gamli VE trilla færi
2807 Ingólfur VE 53 færi
2531 Villi VE 68 færi
2852 Gunna Gamla VE 19 færi
595 Hvítingur VE 21 Lína
1135 Þórunn Sveinsdóttir VE 401 Net
1061 Sighvatur Bjarnarson VE 81 Net
1039 Gjafar VE 600 Net
189 Valdimar Sveinsson VE 22 Net
989 Sæbjörg VE 56 Net
1443 Bylgja VE 75 Net
707 Ófeigur III VE 325 Net
1401 Gullberg VE 292 Net
968 Bergur VE 44 Net
490 Gullborg VE 38 Net
1179 Árni í Görðum VE 73 Net
244 Glófaxi VE 300 Net
136 Kristbjörg VE 70 Net
1379 Dala Rafn VE 508 Net
1146 Danski Pétur VE 423 Net
760 Sjöstjarnan VE 92 Net
1610 Ísleifur VE 63 Net
795 Andvari VE 100 Net
788 Arntýr VE 115 Net
1298 Bjarnarey VE 501 Net
1297 Álsey VE 502 Net
1035 Heimaey VE 1 Net
1272 Guðmundur RE 29 Net
1480 Örn VE 66 Net
1258 Suðurey VE 500 Net
1051 Sigurbjörn VE 329 Net
1098 Kristín VE 40 Net
499 Sæbjörg SU 39 Net
1062 Kap II VE 4 Net
236 Katrín VE 47 Net
263 Gandí VE 171 Net
783 Nanna VE 294 troll
1189 Þorkell Björn NS 123 troll
290 Þórir VE 16 troll
606 Emma VE 219 troll
433 Draupnir VE 550 troll
848 Hellisey VE 503 troll
759 Sjöfn VE 37 troll
1082 Skúli Fógeti VE 185 troll
728 Rán AK 34 troll
833 Sæfaxi VE 25 troll
623 Júlía VE 123 troll
535 Haförn VE 23 troll
721 Sigurbjörg VE 62 troll
1158 Bakkavík ÁR 100 troll
1312 Sigurbára VE 249 troll
392 Erlingur VE 295 troll
1199 Frár VE 78 troll
310 Baldur VE 24 troll
338 Björg VE 5 troll
525 Hafliði VE 13 troll
1228 Stígandi VE 77 troll
1543 Bryndís ÍS 705 troll
1411 Huginn VE troll
1273 Vestmannaey VE
togari
1459 Breki VE
togari
1472 Klakkur VE
togari
1433 Sindri VE togari

Þórunn Sveinsdóttir VE mynd Tryggvi Sigurðsson

Björg VE mynd Tryggvi Sigurðsson