Aflahæstu frystitogararnir árið 2025

Listi númer 10 

og þar með lokalistinn fyrir frystitogaranna árið 2025

ég er búinn að fá gríðarlega mikið af póstum frá ykkur lesendur góður með hvenær 

frystitogaralistinn kemur, eða lokalistinn af þeim

ég hef undanfarin 10 ár haft  það þannig að ég birti lokalistann yfir frystitogaranna 

Aflaverðmæti
þegar ég hef fengið tölur um aflaverðmæti togaranna.  

það tekur yfirleitt nokkurn tíma að fá þær, en þær koma á endaum 

núna er staðan þannig að ég er kominn með aflaverðmætis tölur yfir meira en helming af skipunum

þangað til þá mun ég birta hérna að neðan aflatölur um skipin 

síðan þegar ég er kominn með allar aflatölur um frystiskipin til mín þá mun ég birta þær tölur 

asamt því að reikna út meðalverð,

 Afli frystitogaranna árið 2025

 Þeim fækkaði um einn frystitogara árið 2025 því að Vigri RE stundaði veiðar fram í maí, en var þá lagt og fór ekki aftur til veiða

annars var árið gott hjá skipunum og fjórir togarar náðu yfir 10 þúsund tonna afla

Þetta voru Sólborg RE, Baldvin Njálsson GK, Sólberg ÓF og Þerney RE 

og að þessu sinni þá var það ekki Sólberg ÓF sem var aflahæst

heldur var Þerney RE aflahæstur

Reyndar er það nú þannig að Þerney RE var að veiða töluvert mikið af það sem kalla mætti

uppsjávarfiski

því að Þerney RE landaði 3620 tonnum af makríl

og 3500 tonnum af gullaxi

Sólborg RE var lika með ansi mikið af Gullaxi, því að togarinn landaði 1200 tonnum af gullaxi.

Snæfell EA, Júlíus Geirmundsson ÍS og Guðmundur í Nesi RE voru allir að mestu að veiða grálúðu.

Annars Þerney RE aflahæsti frystitogarinn árið 2025 með rúmlega 15 þúsund tonna afla

Þerney RE mynd Re Pier


Sæti Áður Nafn Afli Landanir Mest
1 1 Þerney RE 1 15376.8 19 1191.9
2 2 Sólberg ÓF 13713.7 12 1552.0
3 3 Baldvin Njálsson GK 10520.6 12 1051.6
4 4 Sólborg RE 27 10020.9 15 961.8
5 7 Tómas Þorvaldsson GK 10 8731.9 11 936.9
6 5 Hrafn Sveinbjarnarsson GK 8250.9 15 724.6
7 8 Blængur NK 7817.1 11 971.2
8 6 Arnar HU 7628.2 13 1045.8
9 9 Guðmundur í Nesi RE 6564.8 13 575.6
10 11 Júlíus Geirmundsson ÍS 5505.3 13 617.3
11 10 Snæfell EA 310 5271.8 11 565.5
12 12 Vigri RE 3067.9 6 764.8