Aflahæstu togarnir í okt.1983

Þetta er vægast sagt mjög skemmtilegur og já frekar óvæntur listi,


En það er eitt sem að Sandgerðingar og Tálknfirðingar vita og hafa á hreinu að í Tálknafirði var togarinn Tálknfirðingur BA 

og hann var mikið aflaskip, og í Sandgerði var togarinn Sveinn Jónsson KE og hann líka var mikið aflaskip,

og það sést ansi vel á þessum lista, þarna eru þessir tveir togarar í slag við mun þekktari aflaskip

eins og Breka VE og Ottó N Þorláksson RE.  

Þessi listi markar smá tímamót því að þetta er síðasti mánuðurinn sem að Bjarni Herjólfsson AR var gerður út

en hann var síðan seldur til Akureyrar og fékk þar nafnið Hrímbakur

Eyvindur Vopni NS sem lengi hét Farsæll SH átti ansi góðan mánuð og endaði í sæti númer 47

Nokkuð fleiri trollbátar eru á þessum lista , en langar að vekja athygli á Smáey VE því að stærsta löndun bátsins

var 77,4 tonn og það sem er merkilegt við þann afla var að þetta var allt ýsa 




Sæti sknr Nafn Afli Landanir mest Höfn ATH
101 1605 Haförn GK 25.0 1 25.1 Sandgerði
100 1595 Helga Jóh VE 41 30.2 4 15.4 Vestmannaeyjar Trollbátur
99 1321 Reynir GK 177 46.0 6 12.8 Sandgerði Trollbátur
98 1558 Dagstjarnan KE 3 57.4 1 57.4 Njarðvík
97 242 Geir Goði GK 220 58.6 7 12.3 Sandgerði Trollbátur
96 1223 Freyja RE 38 59.8 1 59.5 Grimsby Trollbátur
95 1482 Elín Þorbjarnardóttir ÍS 700 62.8 1 62.7 Suðureyri
94 43 Elliði GK 445 65.6 7 16.9 Sandgerði Trollbátur
93 1548 Barði NK 120 69.4 1 69.4 Neskaupstaður
92 1608 Baldur EA 18 75.0 1 75.1 Hull
91 1566 Ásþór RE 10 79.4 1 79.4 Reykjavík
90 1481 Dalborg EA 317 85.7 1 85.7 Hull
89 1393 Sveinborg GK 70 85.9 1 85.8 Grimsby
88 1634 Hólmadrangur ST 70 87.4 1 87.3 Hafnarfjörður
87 1277 Ljósafell SU 70 98.5 1 98.5 Fáskrúðsfjörður
86 1337 Skafti SK 3 99.6 1 99.6 Sauðárkrókur
85 1630 Krossanes SU 4 101.4 2 73.2 Stöðvarfjörður
84 1279 Brettingur NS 50 102.6 1 102.5 Vopnafjörður
83 1346 Hólmanes SU 1 104.4 1 104.4 Færeyjar
82 1407 Siglfirðingur SI 150 105.6 1 105.5 Grimsby
81 1365 Viðey RE 6 120.0 1 120.1 Reykjavík
80 1622 Smáey VE 121.3 4 77.5 Vestmannaeyjar Trollbátur
79 1441 Hjörleifur RE 211 128.7 2 80.2 Reykjavík
78 1397 Sólberg ÓF 12 136.1 3 72.1 Ólafsfjörður
77 1280 Rauðinúpur ÞH 160 136.3 2 75.6 Raufarhöfn
76 1360 Engey RE 1 138.3 1 138.3 Reykjavík
75 1326 Stálvík SI 1 143.3 2 79.5 Siglufjörður
74 1278 Bjartur NK 121 144.6 1 144.6 Grimsby
73 1363 Snæfugl SU 20 146.3 1 146.2 Bremerhaven
72 1612 Skipaskagi AK 102 157.4 2 86.6 Akranes
71 1598 Örvar HU 21 163.4 1 163.3 Skagaströnd
70 1410 Dagrún ÍS 9 176.8 3 75.6 Bolungarvík
69 1274 Páll Pálsson ÍS 102 176.8 3 89.7 Ísafjörður
68 1495 Birtingur NK 119 178.0 2 89.5 Neskaupstaður
67 1556 Sölvi Bjarnarsson BA 65 178.1 3 96.7 Bíldudalur
66 1602 Sjóli RE 18 178.9 3 69.1 Hafnarfjörður
65 1355 Björgvin EA 311 179.1 3 83.2 Dalvík
64 1349 Sigluvík SI 2 181.9 3 111.9 Siglufjörður
63 1526 Ýmir HF 343 185.2 2 107.4 Cuxhaven, Hafnarfjörður
62 1576 Kolbeinsey ÞH 10 187.3 3 87.2 Húsavík
61 1307 Arnar HU 1 188.6 3 100.6 Skagaströnd
60 1302 Guðbjartur ÍS 16 191.4 3 96.5 Ísafjörður
59 1514 Arinbjörn RE 54 194.8 2 111.8 Cuxhaven, Reykjavík
58 1529 Þorlákur ÁR 5 196.1 3 77.8 Þorlákshöfn
57 1442 Snæfell EA 740 196.8 3 106.1 Hrísey
56 1276 Drangey SK 1 196.8 2 99.5 Cuxhaven, Sauðárkrókur
55 1328 Snorri Sturlusson RE 219 198.7 1 198.6 Reykjavík
54 1339 Krossvík AK 300 200.5 2 104.8 Akranes
53 1473 Bjarni Herjólfsson ÁR 200 205.3 2 154.1 Þorlákshöfn
52 1603 Sunnutindur SU 59 208.7 3 98.7 Djúpivogur
51 1281 Ólafur Bekkur ÓF 2 210.0 3 79.9 Ólafsfjörður
50 1476 Björgúlfur EA 312 210.9 2 125.3 Dalvík
49 1553 Jón Baldvinsson RE 208 213.2 2 110.8 Reykjavík
48 1275 Hoffell SU 80 213.8 3 102.5 Fáskrúðsfjörður
47 1629 Eyvindur Vopni NS 70 215.8 4 76.2 Vopnafjörður
46 1268 Ögri RE 72 216.0 1 216.1 Reykjavík
45 1492 Hegranes SK 2 217.4 2 187.3 Cuxhaven, Sauðárkrókur
44 1412 Harðbakur EA 303 217.7 2 131.1 Akureyri
43 1497 Kamparöst SU 200 219.5 3 107.7 Stöðvarfjörður
42 1265 Vigri RE 71 223.2 1 223.1 Reykjavík
41 1395 Kaldbakur EA 301 224.1 2 112.8 Akureyri
40 1506 Heiðrún ÍS 4 224.6 5 93.2 Bolungarvík
39 1253 Karlsefni RE 24 229.5 1 229.5 Cuxhaven
38 1327 Framnes ÍS 708 233.3 3 105.2 Þingeyri
37 1628 Sléttanes ÍS 808 234.7 3 117.2 Þingeyri, Ísafjörður
36 1285 Bergvík KE 22 237.6 3 127.5 Keflavík
35 1478 Bergey VE 544 238.5 3 92.3 Vestmannaeyjar
34 1435 Haraldur Böðvarsson AK 12 245.4 3 125.9 Akranes
33 1530 Sigurbjörg ÓF 1 247.3 3 95.5 Ólafsfjörður
32 1661 Gullver NS 12 250.0 3 104.6 Seyðisfjörður
31 1451 Gyllir ÍS 261 250.4 5 97.3 Flateyri
30 1609 Stakfell ÞH 360 251.1 2 158.2 Þórshöfn
29 1471 Ólafur Jónsson GK 404 257.7 2 143.3 Keflavík
28 1449 Erlingur GK 6 273.0 3 104.4 Sandgerði
27 1378 Haukur GK 25 275.4 3 112.1 Sandgerði
26 1273 Vestmanney VE 54 281.7 4 82.7 Vestmannaeyjar
25 1474 Gullberg NS 11 284.4 3 109.1 Seyðisfjörður
24 1270 Bjarni Benediktsson RE 210 287.2 3 119.9 Reykjavík
23 1509 Ásbjörn RE 50 288.9 2 154.9 Reykjavík
22 1347 Jón Vídalín ÁR 1 289.8 2 178.2 Þorlákshöfn
21 1313 Bessi ÍS 410 290.5 4 111.2 Súðavík
20 1433 Sindri VE 60 292.4 3 115.3 Vestmannaeyjar
19 1325 Otur GK 5 302.2 2 175.2 Cuxhaven
18 1484 Maí HF 346 303.0 3 139.3 Hafnarfjörður
17 1376 Apríl HF 347 308.9 2 163.2 Hafnarfjörður
16 1505 Ásgeir RE 60 314.1 3 135.7 Reykjavík
15 1585 Sigurfari II SH 105 318.3 3 126.2 Grundarfjörður
14 1536 Júlíus Geirmundsson ÍS 270 320.6 4 141.5 Ísafjörður
13 1308 Júni GK 345 321.9 2 187.1 Hafnarfjörður
12 1352 Svalbakur EA 302 322.1 2 170.1 Akureyri
11 1472 Klakkur VE 103 325.5 3 138.7 Vestmannaeyjar
10 1508 Óskar Magnússon AK 177 333.8 3 120.2 Akranes
9 1351 Sléttbakur EA 304 337.4 3 158.9 Akureyri
8 1348 Aðalvík KE 95 338.7 3 144.1 Keflavík
7 1345 Ingólfur Arnarsson RE 201 350.7 2 256.1 Cuxhaven, Reykjavík
6 1579 Guðbjörg ÍS 46 374.2 4 145.5 Ísafjörður
5 1408 Runólfur SH 135 397.9 3 162.9 Grundarfjörður
4 1459 Breki VE 61 434.6 3 182.1 Vestmannaeyjar
3 1578 Ottó N Þorláksson RE 203 436.9 2 224.9 Reykjavík
2 1342 Sveinn Jónsson KE 9 437.3 4 125.4 Sandgerði
1 1534 Tálknfirðingur BA 325 442.5 4 172.5 Tálknafjörður


Tálknfirðingur BA mynd Sigurður Bergþórsson