Akranes í mars árið 2026 og mars árið 1983
Í gær þá birti ég frétt þar sem ég bara saman mars árið 1983 við Mars árið 2026 í Vestmannaeyjum
sú frétt vakti töluverða athygli, og þónokkuð margir höfðu samband við mig og vildu fá að skoða nokkrar hafnir
og sérstaklega var nefni við mig að skoða Akranes.
Akranes átti eitt sameiginlegt með Vestmannaeyjum árið 1983, en það var að að bátarnir sem réru frá báðum þessum höfnum
voru að mestu heimabátar, aðkomu bátar voru fáir sem voru þar, en aðkomubátarnir komu að mestu til
Sandgerðis, Grindavíkur, Þorlákshafnar, Rifs og Ólafsvíkur.
Akranes árið 1983, mars
jú ég skoðaði Akranes í mars árið 1983,
Höfum í huga að árið 1983 var engri loðnu landað á Akranesi, en árið 2026 þá var rúmum 12 þúsund tonnum af loðnu landað
á Akranesi. þannig að við erum bara að horfa í bolfisk afla,
Akranes var um langa tíð ein af stóru löndunarhöfnunum við sunnanvert landið og það var töluvert mikið um að vera þar.
yfir 2000 tonna afli
í Mars árið 1983 þá voru alls 14 bátar og togarar sem lönduðu afla þar, og inn í þeirri tölu eru
tveir togarar.
Heildaraflinn sem bátar og togarar lönduðu á Akranesi í mars árið 1983 var alls 2050 tonn í 136 löndunum
Togarar
Byrjum á togurnum, en Haraldur Böðvarsson AK var með 513 tonn í aðeins 3 löndunum og mest 184 tonn í einni löndun
Krossvík AK var með 363 tonn í 3 og mest 134 tonn.
Enginn færabátur landaði á Akranesi í mars árið 1983.
Lína
Tveir bátar voru á línu.
Grótta AK var með 58 tonn í 9 og Sólfari AK var með 82 tonn í 11
AK loðnubátar á netum og trolli
vegna þess að engar loðnuveiðar voru árið 1983, en voru samt leyfðar um haustið
þá voru loðnubátarnir frá Akranesi á neta og Bjarni Ólafsson AK var á trolli.
Bjarni Ólafsson AK landaði 235 tonn í 3 löndunum og mest 94 tonn.
Höfrungur AK var með 44 tonn í 3 á netum
Rauðsey AK 80 tonní 3 á netum
Netabátar
Skírnir AK 260 tonní 15 á netum og var hann hæstur af netabátunum .
Aðrir netabátar voru
Ebbi AK með 9,9 tonn í 12
Hrólfur AK 10,7 tonn í 11
Reynir AK 75 tonní 19 og réri hann oftast allra báta frá Akranesi í mars árið 1983
Haraldur aK 171 tonní 17
Sigurborg AK 140 tonn í 10
Særún AK 13 tonn í 17
semsé bara nokkuð góður mánuður á Akranesi í mars árið 1983.
ÁRið 2026
en hvernig var þá mars árið 2026.
Það verður að segjast að miðað við mars árið 1983 þá var algjört hrun í afla.
fyrst enginn togari landaði
og bátarnir sem lönduðu á Akranesi í mars árið 2026 voru aðeins 4
og heildaraflinn var 60 tonn af bolfiski, miðað við 2050 tonn í mars árið 1983
Landanir 16 árið 2026, 136 árið 1983

Skírnir AK mynd Guðni Ölvers

Haraldur Böðvarsson AK mynd Jón Páll Ásgeirsson