Fullfermi hjá Þerney RE
Þerney RE er nafn sem við þekkjum mjög, vel , en frá 1993 til 2017 þá stundaði frystitogarinn Þerney RE veiðar hér við land
og var oft á tíðum aflahæsta skipið yfir árið og ansi oft með þeim skipum sem voru með mesta aflaverðmætið.
Ný Þerney
Núverandi Þerney RE er töluvert miklu stærra skip gamla Þerney RE var, og hefur gengið vel að veiða á núverandi Þerney RE.
skipið hóf veiðar árið 2024, og var aflahæsta skipið árið 2025, með rúmlega 15 þúsund tonna afla
en þrátt fyrir að Þerney RE hafi verið aflahæst árið 2025 þá var skipið með lægsta meðalverð allra skipanna eða 388 krónur og í þriðja sætinu
yfir mest aflaverðmætið árið 2025.
Aflahæstur árið 2025, en minnsta meðalverðið
ástæðan fyrir því afhvejru Þerney RE var með svona lítið meðalverð var sú að af þessum rúmlega 15 þúsund tonna afla
þá voru 7100 tonn af makríl og gullaxi, en þær tegundir eru með miklu minna verðmæti enn bolfiskurinn sem hin skipin eru að veiða.
en núna árið 2026 þá er breytingt á útgerðarmynstri Þerneyjar RE, því að skipið er ekkert að veiða makríl og hefur veitt
töluvert minna af gullaxi núna í ár en árið 2025.
Á möguleika
og það þýðir að núna fyrst þá á Þerney RE hugsanlega möguleika á að slást við Baldvin Njálsson GK og Sólberg ÓF um mesta aflaverðmæti
frystitogaranna árið 2026
Fullfermis túrinn í ágúst
Þerney RE er flakafrystitogari og er líka með bræðslu um borð nýtir því aflann mjög vel. og togarinn kom í land núna fyrir stuttu síðan
með fullfermi því að landað var úr skipinu 1585 tonnum
uppistaðan í þeim afla var karfi 424 tonn
ufsi 362 tonn
þorskur 327 tonn
og ýsa 313 tonn.
Arnar H Ævarsson var skipstjóri á Þerney RE í þessum stóra túr og sagði hann að lestin var full í skipinu en hún tekur 46 þúsund kassa
og allir kassarnir eru á brettum í lestinni, en brettinn taka töluvert pláss
auk þess voru mjölpokar af því sem var brætt
38 dagar
túrinn var í heild 38 dagar höfn í höfn, og það gerir um 42 tonn á dag, sem er ansi gott
Þerney RE var við veiðar á Vestfjarðamiðum og Suðvesturmiðum..
Aflaverðmætið úr þessum stóra túr var alls 920 milljónir króna, og það gerir 580 krónur í meðalverð.
Framundan
Framundan hjá Þerney RE er einn túr, og síðan fer skipið til Danmerkur í slipp,
en ætti svo að ná eftir slippnum einum, túr til jóla

Þerney RE mynd Gísli Reynisson