Ægir Jóhannsson ÞH 212 árið 1976
Förum í ferðalag, 50 ár aftur í timann til ársins 1976 og við skulum skoða bát sem var gerður út frá
Grenivík og seinna meir frá Sandgerði.
þessi bátur var einn af 30 tonna eikarbátum sem voru smíðaðir á Akureyri og þessir bátar kölluðust Vararbátarnir enda flestir
smíðaðir þar.
Þessi bátur var með sknr 1430 og var smíðaður árið 1975, og hét Ægir Jóhannsson ÞH 212, og 1976 er því fyrsta árið sem að báturinn var gerður út á heilu ár.
Báturinn hélt þessi nafni töluvert lengi, eða til ársins 1993 eða í tæp 18 ár,
árið 1981 þá var báturinn seldur til Sandgerðis og var gerður út þaðan á dragnót í um 10 ár, reyndar var báturinn lengur í Sandgerði því að báturinn var þar til um 1998 undir tveimur öðrum nöfnum
Erlingur GK og Dagný GK, þangað til að báturinn var seldur til Vestmanneyja og fékk þar nöfnin María Pétursdóttir VE og Birta VE.
En lítum á árið 1976 og sjáum hvernig Ægir Jóhannsyni ÞH gekk að veiða það ár.
Janúar.
Báturinn hóf veiðar um miðjan janúar frá Grenivík og réri á línu, gekk ágætlega. var með 30,5 tonn í 10 róðrum , mest 4,7 tonn í einni löndun
Febrúar.
Í febrúar þá var báturinn áfram á línu og réri frá Grenivík, var með 43,9 tonní 14 róðrum og mest 3,9 tonn í einni löndun.
Mars.
Hérna var báturinn kominn yfir á netin og færði sig eins og margir bátar að norðan, að þeir komu á Snæfellsnes eða á Suðurnesin
og Ægir Jóhannsson ÞH fór til Rifs, og gekk ansi vel, var með 107 tonn í 19 róðrum og mest 18,9 tonn í einni löndun, en það er nú líklega fullfermi hjá bátnum,
Apríl.
Áfram var báturinn á netum frá Rifi og gekk mjög vel, var með 109 tonn í 19 róðrum og aftur með fullfermi, mest 18,6 tonn í einni löndun.
Þess má geta að árið 1976 þá var ekkert hrygningarstopp í apríl eins og er núna árið 2026
Maí til 11.maí lokadagur vetrarvertíðar.
Báturinn var á netum frá Rifi og landaði tvisvar 7 tonnum,
Maí til loka eftir 11.maí.
Báturinn kom til Grenivíkur og fór yfir á línu og var með 32 tonn í 8 róðrum.
Júni.
Hérna skipti Ægir Jóhannsson ÞH yfir á veiðarfæri sem er í dag er bannað, en það er nót, og voru töluvert margir bátar á nótaveiðum frá Norðurlandinu
og þá að veiða þorsk og ufsa
Ægir Jóhannsson ÞH var með 29,8 tonní 4 róðrum á nót og mest 7,9 tonn.
Landað á Grenivík
Júlí.
Hérna var báturinn aftur kominn yfir á línu og gekk mjög vel hjá bátnum, var með 53,7 tonn í aðeins 10 rórðum og mest 8,1 tonn í einni löndun
Ágúst.
Báturinn réri mjög mikið í ágúst, fór í 20 róðra á línu og var með 71 tonn og mest 7,3 tonn í róðri öllu landað á Grenivík.
September.
Þessi mánuður var nokkuð góður, báturinn var áfram á línu og réri áfram frá Grenivík. gekk veiðin nokkuð vel
var með 73,6 tonn í 18 róðrum , eða rúm 4 tonn í róðri.
mest 7,6 tonn í einni löndun,
Október.
áhöfnin á bátnum á sínu fyrsta heila ári var ekkert að slaka á, og hélt áfram að róa á línu og áfram frá Grenivík
var með 46,7 tonn í 11 róðrum.
Nóvember
Aðeins dró úr veiðinni , en báturinn var áfram á línu og landaði 33,9 tonnum í 10 róðrum.
Desember.
Ægir Jóhannsson ÞH fór aðeins í 9 róðra enn veiðin gekk vel, var með 45,8 tonn, eða 5,1 tonn í róðri
Heildarafli.
Heilt yfir má segja að fyrsta heila árið sem að báturinn var gerður út hafi verið mjög gott
sjósókn var mikil, því alls fór báturinn í 154 sjóferðir
og heildaraflinn 683,9 tonn, eða um 4,4 tonn í róðri
og vertíðaraflinn var 297 tonn í 64 róðrum.

Ægir Jóhansson ÞH mynd Tryggvi Sigurðsson