Grásleppumok hjá Aþenu ÞH
Eins og hefur sést hérna eftir að grásleppubátarnir hófu veiðar
þá var mokveiði hjá bátunuim og sérstaklega hjá bátunum sem réru fyrir norðan
meðal annars frá Húsavík,
Einn af þeim bátum sem mokveiddi var Aþena ÞH frá Húsavík
því að í einungis 6 róðrum og lönduðu þeir 25,9 tonnum af grásleppu
og mest 5,9 tonn í einni löndun
Þennan afla fengu þeir í lok apríl
Þeir voru aðeins með 60 net í sjó, og var það í 10 trossum,
í fyrsti fjóru róðrunum þá drógu þeir öll netin
í róðri númer fimm og róðri númer 6 þá drógu þeir aðeins 30 net
það var mokveiði í þessi net, og sem dæmi að í stærsta róðrinum sem var um 5,9 tonn að þá var afli í net
um 98 kíló
að í næsta róðri þá voru þeir með 30 net, en afli í net var þá yfir 100 kíló í net eða 103 kíló
og í róðri númer 6 þá var áfram mokveiði því þá var aflinn í net um 99 kíló.
í stærsta róðrinuim sínum þá var töluvert af lausum afla á dekkinu, og þeir komu í land settu afla í kör
og ísuðu vel og lönduðu síðan deginum eftir

Aþena ÞH með 6 tonn í bátnum

Allt fullt.
Myndir Reynir Hilmarsson