Hafnarfjörður. desember 1961. 4400 tonn af síld



Ég er byrjaður aftur á að halda áfram með vinnuna við að fylla upp í stóra gagnagrunnin sem ég er að búa mér til.

og er núna að vinna í árinu 1961.

það ár var mjög gott aflaár, og vertíðartölur vægast sagt mjög góðar það sem ég hef séð

en á þessum ári 1961 þá var mikil síldveiði  og í Hafnarfirði í desember árið 1961 var mikið um að vera við Sildarlöndun

og hérna lítum við á desember árið 1961 og þetta er allt síld sem fór í bræðslu hjá Lýsi og Mjöl í Hafnarfirði.

það voru samtals 29 bátar sem komu með síld til Hafnarfjarðar í desember árið 1961

og heildaraflinn hjá þeim var 4423 tonn, eða rúm 4400 tonn.

hérna að neðan er listi  yfir bátanna sem lönduðu síld í desember 1961, og flestir bátanna foru með eina löndun 

en það voru fullfermi hjá nokkrum bátum.  t.d Hilmir KE sem var um 70 tonna eikarbátur, hann kom með 55,7 tonn af síld í einni löndunu

Þórkatla GK sem var svipuð að stærð og Hilmir KE kom með 68.7 tonn í einni löndun 

Manni KE sem líka var um 70 tonn af stærð, kom eins og kafbátur í land með 85,9 tonn í einni löndun, og það sama gerði Bergvík KE

sem var með 98,3 tonn í einni löndun.

það voru þó tveir bátar úr Hafnarfirði sem lönduðu lang mest af síld

það voru Eldborg GK og Auðunn GK, en samtals voru þessir tveir bátar með rúm 1200 tonn af síld

efstur var Auðunn GK með 654 tonn í 9 róðrum,  og Eldborg GK þar á eftir með 562 tonní 6 róðrum.

Auðunn GK mynd Snorri Snorrason

Manni KE mynd Snorri Snorrason