Harðbakur EA að vera klár til veiða



Hamingjuóskur frá Hampiðjunni


Harðbakur EA mynd Hafþór Hreiðarsson

Hampiðjan óskar Útgerðarfélagi Akureyringa og áhöfninni á Harðbaki EA 3 til hamingju með nýjan og glæsilegan hátækni togbát til ísfiskveiða og árnar þeim  heilla og fengsældar í framtíðinni.


Á myndinni sést Hjörtur Valsson skipstjóri á Harðbaki með skipsklukku frá Hampiðjunni sem Hermann Guðmundsson rekstrarstjóri Hampiðjunnar á Akureyri afhenti honum þegar áhöfn hans var að gera veiðarfærin klár til notkunar á nýja skipinu á bryggjunni á Akureyri í vikunni.