Hvanney SF 51 árið 1976
Höldum áfram að fara í ferðalag og förum aftur til ársins 1976, og skoðum aftur bát sem var á veiðum árið 1976
og það ár var líka fyrsta heila árið sem að þessi bátur var gerður út.
Þessi bátur kom nýr árið 1975 til Hornafjarðar og hét þá Hvanney SF 51, var smíðaður á Seyðisfirði og er með skipaskrárnúmerið 1426, og árið 2026
þá er þessi bátur ennþá gerður út og heitir Klettur ÍS og er gerður út á sæbjúguveiðar. reyndar búið að breyta bátnum töluvert síðan hann var smíðaður
en brúin er þó sú sama og frammastrið er það sama.
Allavega lítum á hvernig árið 1976 gekk hjá Hvanney SF 51.
Janúar.
Hvanney SF byrjaði árrið 1976 á trollveiðum og landaði á Hornafirði 55,7 tonnum í 9 róðrum eða um 6,2 tonn í róðri.
Febrúar.
Febrúar var frekar rólegur og landaði báturinn aðeins 19,3 tonnum í tveimur róðrum, og skipti síðan um veiðarfæri í þessum mánuði.
Mars.
Núna var Hvanney SF kominn yfir netin og var reyndar ekkert mok hjá bátnum, var með 91,7 tonn í 18 róðrum og mest 18,7 tonn í einni löndun
rétt er að taka það fram að þarna í mars árið 1976 voru 14 bátar á netaveiðum frá Hornafirði.
Apríl.
Apríl mánuður var mjög góður og landaði Hvanney SF 167 tonnum í 16 róðrum eða 10,5 tonn í róðri og mest 22,3 tonn í einni löndun.
Maí mánuður.
Hvanney SF skipti á troll snemma í maí og landaði til vertíðarloka 12,6 tonnum í einni löndun,, og fór síðan yfir á humartrollið
eftir 11.maí þá var báturinn kominn yfir á humar og landaði alls 40,2 tonnum í 3 róðrum og af þeim afla var humar 8,4 tonn.
Júní.
Júní mánuður var mjög góður, og var Hvanney SF á humarveiðum og gekk mjög vel, róðrarnir voru stuttir enda landaði báturinn 96,7 tonnum í 10 rórðum
og af þeim afla var humar tæp 28 tonn.
Júlí.
Áfram var Hvanney SF á humarveiðum og gekk vel, var með í heildina 59,8 tonní aðeins 6 rórðum og af þeim afla var humar um 16,7 tonn.
Ágúst.
Þegar hérna var komið við sögu þá var báturinn hættur á humarveiðum og kominn á trollið og landaði 26,3 tonnum í tveimur róðrum.
September.
Hérna skipti báturinn aftur um veiðarfæri og fór á veiðarfæri sem mörgum sjómönnum fannst vægast sagt frekar erfitt að vinna við, enn það voru reknet á síld
en Hvanney SF var einn af mörgum bátum sem stundaði retnetaveiðar á síld um haustið.
í september þá landaði Hvanney SF 91,5 tonnum í 12 róðrum af reknetasíld og það gerir 7,7 tonn í róðri.
Október.
Hvanney SF var áfram á reknetasíld og veiðin var frekar lítil, var með 49,6 tonn í 10 róðrum, og því aðeins um 4,9 tonn í róðri að meðaltali.
Nóvember
Nóvember var nokkuð góður en Hvanney SF landaði 243 tonnum af síld í reknet í 12 róðrum og það gerir rúm 20 tonn í róðri og mest 44,4 tonn í einni löndun.
öllum síldaraflanum um haustið var landað á Hornafirði.
Desember
Engum afla var landað í Desember.
Heildarafli.
Hvanney SF stundaði nokkuð fjölbreyttan veiðiskap árið 1976 og heildaraflinn það árið var alls 950,5 tonn í 101 löndun,
af þessum afla þá var síldin 384 tonn.
og humaraflinn var 50 tonn
og það má geta þess að Hvanney SF
var aflahæsti humarbáturinn á öllu Íslandi árið 1976.

Hvanney SF mynd Sverrir Aðalsteinsson