Íslandsmet hjá Baldvini Njálssyni GK
í gær þá birtist hérna á Aflafrettir.is frystitogara listinn og þar kom í ljós
Baldvin Njálsson GK
að frystitogarinn Baldvin Njálsson GK var með 2385 tonn í tveimur löndunum.
og fyrri túrinn af þessum afla var risastór því landað var úr togarnum alls 1444,2 tonn.,
í gegnum tíðina þá eru það iðulega stærstu frystitogarnir sem hafa náð svona stórum tölum og
til dæmis Sólberg ÓF , Örfirsey RE ( sem er ekki lengur í útgerð), Vigri RE ( Ekki lengur í útgerð)
og Þór HF ( ekki lengur til). og það er ansi áhugaverð tenging á milli Þórs HF og Baldvins Njálssonar GK
Tryggi Eiríksson og Þór HF
Tryggvi Eiríksson var skipstjóri í þessum risatúr hjá Baldvini en hann hafði áður verið afleysingaskipstjóri á Þór HF og með honum
núna á Baldvini eru menn sem voru líka með honum á Þór HF.
Ýsa uppistaðan
í þessum risatúr hjá Baldvini Njálssyni GK þá var uppistaðan í aflanum ýsa eða 889 tonn, 329 tonn voru af ufsa og þorskur aðeins 115 tonn.
Þessi 1444 tonna túr á Baldvini Njálssyni GK var í í heildina 29 dagar og það gerir tæp 50 tonn á dag.
togarinn var við veiðar á Eldeyjarbanka, Selvogsbanka, Öræfagrunni, Mýragrunni og endaði í mokveiði i Berufjarðarál.
Ufsamok
en í Berufjarðarál lentu þeir í ufsamoki og komust upp í 70 tonn á einum degi.
Til þess að geta afkastað svona miklum afla þá voru vinnsluvélarnar vel nýttar og áhöfnin mjög samhent, enda þrælvön og
það skipti miklu máli að hafa samhenta áhöfn í svona mokveiði.
sem dæmi um afköstin þá þá gerðist það tvisvar á 8 klukkustunda langri vakt að um 30 tonn fóru í gegnum og í pökkun
fyrri vaktin var með 30 tonn og seinni 8 klst vaktin var með 29,5 tonn og því samtals 60 tonn á aðeins 16 klukkutímum
26 manna áhöfn er á Baldvini Njálssyni GK
nýtt Íslandsmet í Aflaverðmæti
en hvað var þá aflaverðmætið,
jú það var ansi nálægt milljarðinum, því að aflaverðmætið úr þessum risatúr var alls 976 milljónir króna ( FOB)
það gerir 675 krónur í meðalverð.
Þess má geta að næsta löndun eftir þennan risatúr hjá Baldvini Njálssyni GK var rúm 900 tonn og því er aflaverðmætið úr þessum tveimur túrum
um 1,6 milljarður króna
og er þetta mesta aflaverðmæti sem að íslensku frystitogari hefur komið með í land í einni löndun,
semsé Íslandsmet, en fyrra metið átti Sólberg ÓF sem kom með fyrr á þessu árið afla að verðmæti 940 milljónir króna.

Baldvin Njálsson GK mynd Bergþór Gunnlaugsson