Línubátar í Mars árið 2026 og 2002.nr.2

Listi númer 2


Góð veiði hjá bátunum hvort sem það er árið 2026 eða þá 2002

Páll Jónsson GK með 262 tonní 2 og kominn í tæp 470 tonn í mars

Tjaldur SH 174 tonn í 2

og merkilegt en í sætum 3 og 4 eru bátarnir Sighvatur GK.

Sighvatur GK árið 2002 var með 164 tonn í 2 og kominn í þriðja sæti

og í sætinu þar á eftir er Sighvatur GK árið 2026 sem var með 116 tonn í 1 og munar á þeim aðeins 2,7 tonn.  

Kristrún RE 128 tonn í 2 og  næst hæstur bátanna árið 2002

Tjaldur SH 62 tonn í 1 árið 2002
Núpur BA 68 tonn í 1

Gandi VE 78 tonn í 2 og var þetta síðasta löndun bátsins á Patreksfirði fyrir bátinn Núp BA.

Albatros GK 93 tonní 2
Kópur GK 94 tonní 2
Valdimar GK 88 tonní 2
Skarfur GK 112 tonn í 3 róðrum

og Gissur Hvíti SF kom með 202 tonna löndun  til Húsavíkur en þetta var afli sem veiddist í Barnetshafinu árið 2002

Sighvatur GK mynd Vigfús Markússon


Sæti Sknr ÁR Áður Nafn Heildarafli Fjöldi Mesti afli Höfn
1 2957 2026 1 Páll Jónsson GK 7 468.8 4 154.2 Grindavík
2 2158 2026 8 Tjaldur SH 270 320.6 5 97.8 Rif
3 975 2002 5 Sighvatur GK 57 319.4 4 85.2 Grindavík
4 1416 2026 2 Sighvatur GK 57 318.7 3 132.8 Grindavík
5 2847 2026 3 Rifsnes SH 44 316.0 5 81.4 Rif
6 256 2002 18 Kristrún RE-177 242.2 4 74.2 Reykjavík
7 2158 2002 4 Tjaldur SH 270 222.2 3 88.9 Reykjavík
8 2159 2026 7 Núpur BA 69 216.7 4 62.4 Patreksfjörður
9 2371 2002 11 Gandí VE 171 215.8 5 58.5 Patreksfjörður
10 1052 2002 16 Albatros GK-60 211.5 4 61.5 grindavík
11 1063 2002 17 Kópur GK 175 208.8 4 60.7 Grindavík
12 2354 2002 15 Valdimar GK 195 207.8 4 68.6 Grindavík
13 1023 2002 20 Skarfur GK 666 205.3 5 53.7 Grindavík
14 1626 2002 22 Gissur hvíti SF-55 201.0 1 201.2 Húsavík
15 971 2002 13 Sævík GK 257 198.2 3 68.9 Þingeyri
16 11 2002 10 Freyr GK 157 195.5 3 77.2 grindavík
17 1135 2002 19 Fjölnir GK 7 194.2 4 55.9 Þingeyri
18 1006 2002 12 Geirfugl GK 66 185.5 2 79.8 grindavík
19 1030 2002 6 Páll Jónsson GK 7 183.4 3 92.9 Grindavík
20 972 2002 24 Garðey SF 22 178.6 3 74.2 Djúpivogur
21 257 2002 14 Faxaborg SH 207 154.3 5 38.9 Rif
22 72 2002 9 Kristinn Lárusson GK 500 145.8 3 62.1 Sandgerði
23 237 2002 21 Hrungnir GK 50 77.3 1 77.3 Grindavík