Loðnuveiðar árið 2026 og 2000- Febrúar og mars-Suðurnesin
Núna er loðnuvertíð í fullum gangi, þó með litlum kvóta aðeins um 150 þúsund tonn.
Loðnan hefur færst nálægt Suðurnesjunum og skipin hafa verið við veiðar núna utan við Grindavík og eru
að færa sig vestur fyrir Reykjanesið áleiðis að Sandgerði og þar fyrir utan.
Fyrst í Sandgerði
þegar að loðnuveiðar byrjuðu alveg fyrst um 1964 þegar að Árni Magnússon GK frá Sandgerði hóf veiðar
og fyrsta loðnuverksmiðjan á ÍSlandi sem tók á móti loðnu, var í Sandgerði en reyndar var það nú þannig að í fyrsta loðnuróðri
hjá Árna Magnússyni GK þá kom hann með 160 tonn til Sandgerði enn enginn bræðsla vildi kaupa loðnuna svo að línubáta sjómenn keyptu loðnuna,
í næsta róðri á eftir þá ákvað Guðmundur Jónsson sem var með loðnubræðslu í Sandgerði að kaupa loðnuna og bræða hana og úr var
úrvals mjöl og þar með hófust loðnuveiðar til bræðlsu og síðan frystingu þarna við Sandgerði árið 1964.
Árið 2026
Núna um 60 árum síðar er allt annað uppá teningum. því að núna er enginn bræðsla í Sandgerði, og reyndar er nú enginn loðnubræðsla á Suðurnesjunum
Það þýðir að loðnuskipin sem eru við veiðar við Reykjanesið sigla allir með aflan sinn að mestu til Austurlands og eitthvað til Vestmannaeyjar.
Þessar löngu siglingar eru frátafir frá veiðum uppá nokkra daga á hvert skip.
Febrúar og mars árið 2000
fyrr á þessari öld , árið 2000, þá voru þrjár bræðslur , Grindavík, Sandgerði og Helguvík. enda var stutt á miðin og mikið um landanir
lítum aðeins á febrúar og mars árið 2000 og þessar þrjár hafnir.
á þessar þrjár hafnir þessa tvo mánuði þá komu samtals á land rúm 108 þúsund tonn af loðnu.
Febrúar árið 2000
og í Febrúar þá var 18 þúsund tonnum landað í Helguvík, rúmum 16 þúsund tonnum landað í Grindavík og 6600 tonnum í Sandgerði.
í Grindavík þá var Seley SU með 5099 tonn í 7 löndunum, en þarna átti Samherji skipið og þetta skip var lengi togarinn Sölvi Bjarnason BA frá Bíldudal
Oddeyrin EA var með 4348 tonn í 6 löndunum og þessi bátur var lengi í Grindavík og hét þá Albert GK
Sunnutindur SU var með 3122 tonn í 4 róðrum og þessi bátur var líka lengi í Grindavík og hét þá Víkurberg GK.
í Sandgerði þá var Birtingur NK með 3249 tonn í fimm löndunum en þessi bátur var lengi Sighvatur Bjarnason VE
Súlan EA 2807 tonn í 3 og Bergur Vigfús GK 533 tonn í einni löndun.
í Helguvík þá var Hákon ÞH með 2892 tonn í 3 róðrum
Bjarni Ólafsson AK 2530 tonn í 2, en þetta var " nýi" Bjarni Ólafsson AK. gamli báturinn landaði í Grindavík 1001 tonni í einni löndun
og hét þá Neptúnus ÞH
Mars árið 2000
í Mars þá var mikið um að vera í loðnu á þessum þremur höfnum,
mest þó í Helguvík en þar komu á land 35 þúsund tonn af loðnu. Í Grindavík komu á land tæp 25 þúsund tonn af loðnu og í Sandgerði tæp 8 þúsund tonn af loðnu.
Grindavík.
Sunnutindur SU landaði þar lang mest eða 7727 tonnum í 11 löndunum
Oddeyrin EA var með 5651 tonn í 8 löndunum
Seley SU 4931 tonn í 8
Þorsteinn EA 3793 tonn í 4
Helguvík
Þar var mikið um að vera og margar landanir,
Örn KE var þar hæstur með 8680 tonn í 10 löndunm
Grindvíkingur GK 5402 tonní 6
Súlan EA 4251 tonn í 6
Þórður Jónasson EA 1963 tonn í 4
Ísleifur VE 3045 tonní 3
Hákon ÞH 2725 tonn í 3
Sandgerði
þar voru þrír bátar sem lönduðu loðnu.,
Birtingur NK var með 5232 tonn í 8
Súlan EA 1905 tonn í 3
og Bergur Vigfús GK 804 tonn í 2
Samtals eins og að ofan segir þá voru þetta 108 þúsund tonn sem komu á land í þessum þremur höfnum í febrúar árið 2000 af loðnu
Helguvík var með tæp 53 þúsund tonn
Grindavík með tæp 41 þúsund tonn
Sandgerði með 14500 tonn.
Ekkert
núna 26 árum síðan, ekki eitt gramm sem af loðnu kemur á Suðurnesin

Örn KE mynd Þór Jónsson

Birtingur NK mynd Reynir Sveinsson

Sunnutindur SU mynd Jón Páll Ásgeirsson