Mokveiði á línu í febrúar árið 1962

ég er búinn að vera núna undanfarna daga að setja í stóra gagnagrunninn minn tölur úr aflaskýrslum frá árinu 


1962,  og þegar þetta er skrifað er kominn með 977 báta á skrá. mest smábátar um allt landið það ár.

og ég var að klára að skrifa niður tölur frá Sandgerði og mér fannst þær ansi áhugaverðar og ætla  því

að fara með ykkur í smá ferðalag aftur til febrúar 

Sandgerði 
Sandgerði hefur í gegnum útgerðarsögu Íslands verið einn af þessum stóru útgerðarbæjum og fiskimiðin þar fyrir 

utan hafa ætíð gefið góðan afla ár eftir ár.

Núna í febrúar árið 2026 þá var ansi mikill floti af línubátum, 29 metra togurunum, net og nokkrir færabátar þar fyrir utan og veiddu vel.

það var líka þannig í febrúar árið 1962, enn þá var mokveiði á línuna þar fyrir utan.  

Þess má geta að tíðin var frekar slæm seinni hlutann af febrúar og því eru róðrarnir hjá bátunum ekki það margir, flestir hjá Hrönn II GK 16 róðrar

 13 línubátar
í Sandgerði í febrúar árið 1962 þá voru alls 13 línubátar sem lönduðu afla þar og allir þessir bátar voru með 11 manna áhafnir, og allir réru með balalínu.

flestir voru með 36 til 46 bala,

þessir 13 bátar lönduðu alls 1911 tonnum af fiski, og til samanburðar þá var afli báta í Sandgerðishöfn í febrúar árið 2026, rúmlega 1800 tonn.

en það komu samtals á land í Sandgerði í Febrúar árið 1962 tæplega 2200 tonn af fiski.

Árið 1962 þá var loðnuveiði ekki byrjuð en loðnan gekk þarna yfir í mars, enda þá skiptu allir bátarnir nema einn bátur,  Hrönn II GK yfir á netin

en Hrönn II GK var eini báturinn sem réri á línu alla vertíðina frá Sandgerði.

 Hvar lönduðu bátarnir
En hvar lönduðu þessir bátar jú flestir eða fjórir bátar ,  ( Freyja GK 110, Smári ÞH 59, Mummi GK 120 og Jón Garðar GK 510) lönduðu 

hjá Guðmundi á Rafnkelssöðum eins og var kallaður, enn hann var með fiskvinnslu í tveimur húsum í Sandgerði, í húsnæðinu sem nú hýsir Þekkingarsetur Suðurnesja

og húsnæðið þar sem AG seafodd er í dag, 

Aflinn af þessum 13 línubátum sem lönduðu í Sandgerði var allur unnin í Sandgerði nema af tveimur bátum.  Jóni Finnssyni GK og Gunnari Hámundarssyni GK

en aflinn af þeim var unnin í Garðinum 

Munin GK 342, Stefán Þór ÞH 40 og Jón Gunnlaugs GK 444 lönduðu allir hjá Miðnes, .

mikil vinna var við beitningu af bátunum en 4 til 6 beitningamenn og konu beittu við hvern bát , en reikna má með miðað við fjölda róðra sem voru samtals 158

að beittir hafi verið rúmlega 6300 balar þarna í febrúar árið 1962.

Hérna að neðan má sjá aflan hjá línubátunum sem lönduðu í febrúar í SAndgerði árið 1962, og þetta er ansi flottar tölur svo ekki sé meira sagt

sérstaklega hjá þremur efstu bátunum, en Freyja GK og Smári ÞH voru báðir um 70 tonna eikarbátar, Guðbjörg GK og Jón Garðar GK voru stálbátar 


Sæti Nafn Afli Landanir Mest Meðalafli
1 Jón Garðar GK 510 193.9 13 30.2 14.9
2 Freyja GK 110 190.2 14 21.3 13.6
3 Smári ÞH 59 187.2 14 16.3 13.3
4 Guðbjörg GK 220 166.3 13 23.1 12.9
5 Muninn GK 342 163.7 14 18.9 11.7
6 Stefán Þór ÞH 40 149.8 15 14.6 9.9
7 Mummi GK 120 139.6 12 15.6 11.6
8 Hrönn II GK 241 139.0 16 17.3 8.7
9 Jón Gunnlaugs GK 444 134.8 12 17.9 11.2
10 Pétur Jónsson ÞH 50 130.3 13 14.9 10.1
11 Jón Finnson GK 506 125.3 12 12.3 10.4
12 Gunnar Hámundarsson GK 357 97.6 13 10.6 7.5
13 Gylfi II EA 150 93.3 8 21.3 11.6

Jón Garðar GK mynd ljósmyndari ókunnur