Mokveiði hjá Júlla Páls SH í aðeins tvær trossur
Þá er nýjasti listinn um báta að 21 bt í mars kominn á aflafrettir.is
og á toppnum er að þessu sinni ekki línubátur heldur er það netabáturinn Júlli Páls SH frá Ólafsvík
Aron Kristjánsson er skipstjóri á Júlla Páls SH og hann er búinn að vera með bátinn á netum síðan í júlí árið 2025, að mestu að
eltast við ufsann en hefur verið núna í mars að veiða þorsk.
Vanalega er hann með tæplega 40 net í fjórum trossum, en sama dag og Bárður SH fékk sín 112 tonn á einum degi
þá fór Aron með áhöfn sinni sem telur tvo menn ásamt honum..
að hann fór aðeins með 19 net í tveimur trossum,
Hann lagði netin ekki langt frá Ólafsvík og eftir að hafa dregið aðeins eina trossu þá var báturinn orðinn fullur
og þurfti þá að fara í land að landa, og kom þá uppúr bátnum 12,5 tonn miðað við blautt út bátnum
og það gerðu 8,6 tonn óslægt
aftur fóru Aron og félagar út til að draga restina af netunum og það voru þá aðeins 9 net og
kom báturinn með 8,3 tonn í land óslægt
samtals gerði því dagurinn hjá þeim tæp 17 tonn sem fengust í aðeins tvær trossur eða 19 net.
Júlli Páls SH er gerður út af Breiðavík ehf sem gerir út línubátinn Kristinn SH
Meistari Alfons Finnson í Ólafsvík var á bryggjunni í Ólafsvík þegar að Júllí Páls SH kom í land úr seinni róðri sínum
og myndirnar tvær eru frá honum

Júlli Páls SH í Ólafsvík

Júlli Páls SH myndir Alfons Finnson