Netabátar í Apríl.2026.nr.2

Listi númer 2


Núna er netarallið svo til að verða búið og afli bátanna sem voru og eru í rallinu búinn að vera ansi góður

Saxhamar SH sem var með faxaflóann og reykjanesið og byrjaði að landa í Reykjavík

kom síðan til Sandgerðis og kláraði rallið þaðan , gekk ansi vel var með 205 tonní 7 róðrum 

og endaði með 250 tonn í 9 róðrum , og var nokkuð jöfn skipting á aflanum hjá bátnum sem landað var í Sandgerði 

og Reykjavík

Aðrir bátar sem líka eru í rallinu eru

Þórsnes SH sem á veiðum frá Reykjanesi og áleiðis að Vestmannaeyjum.  

Friðrik Sigurðsson ÁR sem er frá Vestmannaeyjum og áleiðis austur  að Inghólfshöfða

Sigurður Ólafsson SF sem tekur við þar og fer austur um

MAgnús SH sem var í Breiðarfirðinum 

og Hafborg EA sem tekur allt Norðurlandið frá Hólmavík og til Þórshafnar, enn Hafborg EA er með stærsta svæðið

og þar með talið að báturinn mun landa í flestum  höfnunum í sínu ralli

Netaralls bátarnir hafa alls landað núna 750 tonnum, mest af þorski

Kap VE og Bárður SH eru ekki í rallinu en eru samt komnir með yfir 200 tonna afla

AF minni bátunum þá var Björn Hólmsteinsson ÞH með 19 tonní 5 róðrum og er hæstur af minni  netabátunum 

SAxhamar SH mynd Gísli Reynisson




Sæti áður Nafn Heildarafli Róðrar Mesti afli Höfn
1 1 Kristrún RE - 177 294.5 1 294.5 Eskifjörður
2 4 Saxhamar SH - 50 250.7 9 54,3 Sandgerði, Reykjavík
3 2 Kap VE - 4 219.5 5 52.4 Vestmannaeyjar
4 3 Bárður SH - 81 212.6 6 34.5 Rif
5 5 Magnús SH - 205 201.5 8 17.8 Rif
6
Þórsnes SH - 109 103.2 4 37.8 Þorlákshöfn
7
Friðrik Sigurðsson ÁR - 17 83.0 4 41.4 Vestmannaeyjar
8
Sigurður Ólafsson SF - 44 59.9 4 24.0 Hornafjörður
9 6 Hafborg EA - 152 49.8 6 13.9 Dalvík, Sauðárkrókur, Skagaströnd
10
Jökull ÞH - 299 39.8 1 39.8 Húsavík
11 7 Grímsi GK - 555 35.1 4 8.8 Keflavík
12 8 Björn Hólmsteinsson ÞH - 164 34.4 9 5.4 Kópasker
13 9 Tjálfi SU - 63 21.3 7 3.8 Djúpivogur
14 12 Finnur EA - 245 10.2 5 1.9 Akureyri
15 10 Ágústa EA - 16 9.7 5 3.9 Kópasker
16 18 Þorleifur EA - 88 8.2 5 1.3 Grímsey
17 11 Emma Rós KE - 16 6.3 1 6.3 Keflavík
18 14 Hafbjörg ST - 77 6.2 5 2.1 Hólmavík
19 16 Dagrún HU - 121 5.6 5 1.7 Skagaströnd
20 13 Addi afi GK - 37 5.3 1 5.3 Keflavík
21 15 Halldór afi KE - 222 3.7 1 3.7 Keflavík
22 17 Haförn I SU - 42 3.3 6 1.0 Mjóifjörður
23
Birta BA - 72 0.3 1 0.3 Ólafsvík