Nýr bátur til Noregs frá Trefjum





Stein Magne Hoff útgerðarmaður frá Ålesund í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan bát fra Batasmiðjunni Trefjum ehf í Hafnarfirði


Báturinn er af gerðinnni Cleopatra 42.


Stein Magne verður sjálfur skipstjóri bátnum, tveir verða í áhöfn bátsins.


Nýji báturinn heitir M/S Tare. Báturinn er 12.5 metrar á lengd og mælist 18brúttótonn.


Aðalvélar bátsins eru tvær af gerðinni Yanmar 6LYA2-STP, 440hk/ 3300omr tengdar ZF 286IV gírum.


Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno og Olex.


Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúf sem tengdar er sjálfstýringu bátsins.


Báturinn er útbúinn til línuveiða. Báturinn verður einnig notaður til sjótangveiði og kennslu í Sjómannaskóla.


Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.


Rými er fyrir 19stk 380lítra kör í lest. Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni. Svefnpláss er þrjá í lúkar. Salerni með sturtu.


Báturinn er kominn til Noregs



Tare mynd Trefjar..is