Nýr humarbátur til Bretlands

Ekki oft sem að afhendur er bátur sem er að mestu við veiðar á humri,


enn Trefjar afhentu einn í September bát sem fór til Englands,

Aflafrettir náðu sambandi við eigandann af bátnum hann Ben Woolford og var hann ansi ánægður með nýja bátinn.

Báturinn kom með skipi Eimskips til Englands í September   Sendi hann mér mynd og eins og sést á myndinni þá er humarinn sem þeir veiða 

miklu stærri enn sá sem er veiddur á íslandi

Ben sagði að þeir væru með 3000 gildrur í sjó og næðu að draga rúmlega 1000 gildrur á dag.  



Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi núna nýverið nýjan Cleopatra bát til Bridlington á austurströnd Englands.

Að útgerðinni stendur Ben Woolford sjómaður frá Bridlington sem jafnframt er skipstjóri á bátnum.

 

Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Dylhàris.  Báturinn er 30brúttótonn.  Dylhàris er af gerðinni Cleopatra 50.

 

Í bátnum eru tvær aðalvélar er af gerðinni FPT C90 tengd ZF 286IV gírum.

Báturinn er útbúinn 18kW rafstöð af gerðinni Nanni.  Siglingatæki koma að stærstum hluta frá Simrad og Raymarine.  Báturinn er með uppsettar Olex og MaxSEA skipstjórnartölvur.

Hann einnig útbúin með vökvadrifnum skut og bógskrúfum sem tengd er sjálfstýringu bátsins.

Báturinn er útbúinn til gildruveiða á humri og töskukrabba.  Reiknað er með að báturinn muni draga 1000gildrur á dag.

Í fiskilest bátsins er sjálfvirkt sjóúðunarkerfi til að halda humri lifandi um borð.  Með þessu fyrirkomulagi fæst mun meira aflaverðmæti.

Öryggisbúnaður bátsins er frá Viking.

 

Rými er fyrir 20stk 660lítra kör í lest.  Í vistarverum er, svefnpláss fyrir fimm.  Fullbúin eldunaraðstöðu með öllum tækjum.

 

Að sögn útgerðarinnar mun báturinn verða gerður út frá Bridlington allt árið, báturinn hefur þegar hafið veiðar.





Mynd frá Ben