Ólafur Jónsson GK 404 árið 1983


Eins og ég kom fram á í pistli um Sigurfara II SH, þá ætla ég með ykkur í tvö ferðalög  til að skoða tvo togara.

hérna í þessum pistli þá skoðum við togara sem var einn af þremur togurnum sem voru systurtogarar, og voru allir smíðaðir

í Póllandi, þetta er Ólafur Jónsson GK, sem að Miðnes ehf í Sandgerði átti og gerði út, og var þessi togari eini togarinn af þessum þremur

pólsku togurnum sem var lengdur og breytt í frystitogara.

Togarinn var með heimahöfn í Sandgerði, og landaði þar ásamt því að landa í Njarðvík,  Reyndar árið 1983 þá landaði Ólafur Jónsson GK allt árið í Njarðvík

En lítum á hvernig gekk árið 1983.

Janúar.

 Togarinn hóf veiðar  um miðjan janúar og landaði 130 tonnum í einni löndun í Njarðvík.

 Febrúar.
 Febrúar var nokkuð góður, en Ólafur Jónsson GK landaði alls 336 tonnum í aðeins tveimur löndunum, sem gerir 168 tonn í löndun.

Mars.
 
  Mars var mjög góður, því að Ólafur Jónsson GK komst tvisvar með yfir 200 tonn í löndun, og var  heildarafli togarans í mars, 540,6 tonn í þremur túrum 

eða 180 tonn í löndun, mest 217 tonn í einni löndun.

 APríl

 Apríl var líka mjög góður, og mokveiði var hjá togaranum, en hann landaði alls 579,7 tonnum í aðeins þremur löndunum , og það gerir 193 tonn í löndun

mest 217,2 tonn, styðsti túrinn var fimm dagar og kom þá togarinn með 189 tonn sem gerir 38 tonn á dag, enn uppistaðan í þessum afla í apríl 

var að mestu ufsi og karfi.

 Maí.

 Maí var líka góður,  Ólafur Jónsson GK landaði alls 424,8 tonnum í þremur löndunum og mest 174 tonn í einni löndun.

 Júní.
 
Hérna landaði Ólafur Jónsson GK aðeins tvisvar , en var samt með 271 tonna afla , og mest 158 tonn í einni löndun

Júlí.
 Togarinn landaði aðeins tvisvar en  mokveiði var hjá honum, og landaði Ólafur Jónsson GK 360 tonnum í aðeins tveimur túrum, og þar af 

var seinni túrinn fullfermi eða 215 tonn sem fékkst eftir 7 daga á veiðum, og það gerir um 30 tonn á dag.

 Ágúst

 Ágúst var feikilega góður og var heildarafli togarans alls 557 tonn í þremur ferðum og það gerir 186 tonn í löndun,

og enn einn fullfermis túrinn sem var yfir 200 tonn, en mest landaði Ólafur Jónsson GK í ágúst 216,2 tonnum í einni löndun

 September.
 
Og veiðin hélt áfram að vera góð, en í september þá landaði togarinn 461 tonni  í aðeins þremur löndunum, og það gerir 154 tonn að meðaltali

og enn og aftur þa´var togarinn með yfir 200 tonn  í einni löndun , en mest kom hann með 203 tonn í land 

 Október.
 
Eftir mokið sem að togarinn var búinn að vera í síðan í júlí þá var fínt að fá svona rólegan mánuð, enn togarinn landaði 

tvisvar í október, alls 257,7 tonnum.

 Nóvember.
Eins og með Sigurfara II SH sem silgdi erlendis með afla í nóvember þá fór Ólafur Jónsson GK líka í siglingu,

togarinn byrjaði á að landa 83 tonnum í Njarðvík en fór síðan til veiða og að mestu í ufsa og karfa og fór til Grimsby í Bretlandi 

með 144 tonna afla.  

Samtals 227 tonna afli í nóvember.

 Desember.
 
Árið 1983 byrjaði með einni löndun í janúar, og árið 1983 endaði í desember líka með einni löndun, en togarinn landaði 83 tonnum í einni löndun.

 Heildarafli.

 ÁRið 1983 var feikilega gott fyrir Ólaf Jónsson GK og var hann í 15 sæti yfir aflahæstu togaranna árið 1983, en það skal tekið fram árið 1983 þá voru yfir 100 togarar á veiðum.

Heildarafli Ólafs Jónssonar GK var alls 4229 tonn í 27 löndunum, og það gerir um 157 tonn í löndun að meðaltali, sem er mjög hár meðalafli,

í alls sex skipti komst togarinn með yfir 200 tonn í löndun.

Ólafur Jónsson GK mynd Sæmundur Þórðarson
Kæru Lesendur.
kt 200875-3709
Bók 0142-15-380889
Takk kærlega fyrir
Gísli Reynisson