Risadagur hjá Bárði SH, yfir 100 tonn á einum degi

Tíðarfarið núna í mars er búið að vera vægast sagt mjög erfitt og bátar hafa komist í ansi fáa róðra


þá daga sem hefur gefið á sjóinn þá er búið að vera mokveiði , og sérstaklega  hjá þeim bátum sem eru á netum,

Netabátarnir eru núna svo til að mestu einungis í Faxaflóanum og við Snæfellsnes, og þar hafa til dæmis verið

Júlli Páls SH,  Þórsnes SH, Kap VE, Geir ÞH, Ólafur Bjarnason SH , Jökull ÞH og síðan Bárður SH.

En áhöfnin á Bárði lenti heldur betur í mokveiði núna fyrir nokkrum dögum síðan 

því að báturinn þurfti að þrílanda sama daginn,

Hann fór út með átta netatrossur, 

og eftir að hafa einungis dregið tvær trossur þá komu þeir í land á Rifi með 42,5 tonn afla

aftur fóru þeir út og drógu aftur tvær trossur og aftur var báturinn fullur, og kom í land með 44,6 tonna afla.

Þá var farið út í þriðja skipti og restin af trossunum dregið og kom báturinn í landa þá með 30,5 tonn.

Samtals þá gerði því þessi dagur 112,6 tonn sem er rosalegur afli í 8 trossur eða 14 tonn í trossu.


Þrjár mismunandi tölur
Reyndar er nokkuð athyglisvert að skoða nánar þessar tölur, því að það eru í raun þrjár mismunandi tölur,

Fyrst það tölur frá vigtinni á Rifi, en samtals eru þær 152,1 tonn.  

síðan er það brúttótonna tala við endurvigtun og samtals er sú tala 127,5 tonn

en ísprósentan var 27% í fyrstu löndun, 26% í löndun númer 2, og 20 % í löndun númer 3.

þá stendur eftir 112,6 tonn sem er talan til kvóta.

 Kvótinn
Bárður SH er fyrir löngu búinn að veiða sinn þorskkvóta og kom kvótinn frá Vinnslustöðinni, nánar til tekið Breka VE, 

Bárður SH mynd Vigfús Markússon