Risalöndun hjá Björg EA.

Ekki beint hægt að segja að desember mánuður hafi byrjað neitt sérstaklega vel


því snarvitlaust veður var í byrjun desember og t.d tók Samherji þá ákvörðun um að sigla

öllum togarflotanum sínum í höfn og láta togaranna bíða í landi á meðan að mesta óveðrið gekk yfir.

Togarnir fóru síðan að tínast út þegar veður fór að skána

og veiðin hjá þeim var mjög góð

Togarinn Björg EA lenti heldur betur í Mokveiði en togarinn var við veiðar  við norðurlandið og kom til Dalvíkur 

með sína stærstu löndun sína frá þvi að togarinn kom til íslands og hóf veiðar

Björg EA landaði nefnilega 250,3 tonnum af fiski eftir 6 daga túr höfn í höfn og það gerir um 42 tonn á dag

af þessum afla þá voru 191 tonn af þorski og 34 tonn af +ysu


Björg EA mynd Þórður Birgirsson