Sandgerði stærsta höfnin, 4259 tonn á land í maí.
Þá er Maí mánuðurinn árið 2025 búinn og þar með er fyrsti mánuðurinn á strandveiðitímabilinu
árið 2025 lokið,.
Heildarafli sem kom á land í maí var alls 4259 tonn
og hérna að neðan verður litið á stærstu hafnirnar sem voru með flesta bátanna,
Stærsta höfnin var
Sandgerði, en þar komu alls 65 strandveiðibátar með afla til löndunar
næst þar á eftir komu Arnarstapi og Bolungarvík með 54 báta báðar hafnir
Ólafsvík og Patreksfjörður voru með 47 báta báðar hafnir
og rétt þar á eftir var Rif með 43 báta.
Nokkrar hafnir voru aðeins með einn bát
Hauganes var með einn bát, Huldu EA sem var með 2,2 tonn í 10 róðrum
Hrísey var með einn bát, Hafdís Júl EA sem var með 3,1 tonní 8 róðrum
Súðavík var með einn bát, og þar kom líka minnsti aflinn á land,
þar var Stundvís ÍS sem kom með 225 kíló í einni löndun

Sandgerðishöfn Mynd Gísli Reynisson