Sjóstanga tíminn hafinn, Bliki ÍS hæstur
Núna í maí þá hófst strandveiðitímabilið sem ansi mikið er fjallað um í fjölmiðlum og sitt sýnist hverjum
það var reyndar annar tímabil sem líka hófst, sem ekki er eins mikið fjallað um
en það er sjóstangaveiðitímabilið.
og á þessum bátum sem eru á veiða sjóstöng, þá er enginn frá Íslandi, heldur er þetta mest allt
þýskir eða þýskumælandi ferðamenn sem koma hérna til landsins og eru hérna í viku í hvert skipti.
Reyndar hefur undafarin ár verið tvö fyrirtækið á Vestfjörðum sem hafa verið með fólk í sjóstangaferðum
og fyrirtækið Fisk club ehf hefur verið með báta sem allir heita Bobby og síðan tölur þar á eftir, Bobby I, Bobby II og svo framvegis
enginn bátur frá þeim hefur farið á veiðar og því eru bátarnir sem núna eru fyrir vestan á sjóstöng allt bátar frá
Iceland Sea Angling ehf, en allir bátarnir frá þeim heita nöfnum eftir fuglum,
reyndar fór Hópsnes GK á sjóstöng frá Sandgerði og fór inn í Faxaflóan, og síðan eru sjóstangaveiðimótin, sem eru tvö það sem komið er
heildaraflinn sem sjóstangaveiðibátarnir fyrir vestan hafa veitt er kominn í tæp 29 tonn
síðan eru sjóstangamótin kominn með 16,5 tonna afla
Bliki ÍS byrjar langhæstur af sjóstangaveiðibátunum fyrir vestan með 4,2 tonn í 10 róðrum

Bliki ÍS mynd Arnbjörn Eirkíksson
Sæti | Sknr | Áður | Nafn | Heildarafli | Fjöldi | Mesti afli | Höfn |
1 | 7589 | Bliki ÍS-414 | 4.21 | 10 | Súðavík | ||
2 | 7556 | Stuttnefja ÍS-441 | 2.85 | 10 | Súðavík | ||
3 | 7554 | Már ÍS-440 | 2.48 | 12 | Súðavík | ||
4 | 7587 | Óðinshani ÍS-445 | 2.25 | 11 | Bolungarvík | ||
5 | 7585 | Himbrimi ÍS-444 | 2.11 | 15 | Bolungarvík | ||
6 | 7557 | Lundi ÍS-406 | 1.93 | 6 | Súðavík | ||
7 | 7560 | Álka ÍS-409 | 1.80 | 11 | Súðavík | ||
8 | 7582 | Hávella ÍS-426 | 1.75 | 13 | Súðavík | ||
9 | 7562 | Kría ÍS-411 | 1.67 | 5 | Súðavík | ||
10 | 7555 | Langvía ÍS-416 | 1.55 | 7 | Súðavík | ||
11 | 7583 | Svanur ÍS-443 | 1.40 | 12 | Bolungarvík | ||
12 | 7586 | Sendlingur ÍS-415 | 1.30 | 6 | Bolungarvík | ||
13 | 7559 | Haftyrðill ÍS-408 | 1.05 | 8 | Súðavík | ||
14 | 7588 | Álft ÍS-413 | 0.82 | 6 | Bolungarvík | ||
15 | 7579 | Toppskarfur ÍS-417 | 0.65 | 2 | Súðavík | ||
16 | 7558 | Teista ÍS-407 | 0.56 | 3 | Súðavík | ||
17 | 2457 | Hópsnes GK | 0.25 | 1 | Sandgerði | ||
18 | 7581 | Þórshani ÍS-442 | 0.14 | 11 | Súðavík |