Sjóstangaveiðibátar árið 2016
Eins og talað var um hérna á síðunni þá munu listar fara að birtast hérna um aflahæstu báta í hverjum flokki fyrir sig fyrir árið 2016.
Ég ætla reyndar að byrja á nýjum lista og má segja að þessi listi sé ekki með íslenskum sjómönnum.
því að á vestfjörðum er orðin ansi mikil ferðamennska að selja ferðamönnum sem helst koma frá Þýskalandi til Sjóstangaveiða og má segja að tvö fyrirtæki þar séu fyrirferðarmest .
Þessi tvö fyrirtæki eru Iceland Sea Angling HF sem er með bátanna sína í Súðavík og Tálknafirði
hitt fyrirtækið er Iceland Pro Fishing og er það staðsett með báta sína á Flateyri og Suðureyri. Bátarnir þeirra heita allir Bobby og svo númer 1 og uppí 22.
Alls lönduðu þessir bátar með þýskum sjómönnum um borð samtals 436 tonnum í 2381 löndunum eða 183 kíló í löndun.
á milli fyrirtækjanna þá er það þannig að Iceland Pro Fishing er með 139,8 tonn og Iceland Sea Angling HF með 296,2 tonn
í prósentum þá er Iceland Sea Angling með 68 % af heildinni og Iceland Pro Fishing með 32%.
AFlahæstur bátanna var Bliki ÍS sem var með 22 tonn og hérna að neðan er list yfir þessa báta. Athygli vekur að einn þessara báta er ekki frá Vestfjörðum og er það Ýmir AK sem var á Akranesi.
Sæti | Nafn | Afli | Landnir | Meðalafli |
39 | Ýmir AK 80 | 1.96 | 17 | 0.115 |
38 | Bobby 4 ÍS 364 | 3.23 | 18 | 0.179 |
37 | Bobby 13 ÍS 373 | 6.23 | 31 | 0.201 |
36 | Bobby 2 ÍS 362 | 6.37 | 27 | 0.236 |
35 | Bobby 1 ÍS 361 | 6.50 | 39 | 0.167 |
34 | Bobby 22 ÍS 382 | 6.53 | 43 | 0.152 |
33 | Bobby 9 ÍS 369 | 8.19 | 38 | 0.215 |
32 | Bobby 6 ÍS 366 | 8.88 | 41 | 0.216 |
31 | Bobby 7 ÍS 367 | 8.92 | 55 | 0.162 |
30 | Óðinshani BA 407 | 9.49 | 53 | 0.179 |
29 | Bobby 20 ÍS 380 | 9.87 | 53 | 0.186 |
28 | Bobby 8 ÍS 368 | 9.94 | 49 | 0.202 |
27 | Himbrimi BA 415 | 9.95 | 57 | 0.175 |
26 | Bobby 10 ÍS 370 | 10.04 | 52 | 0.193 |
25 | Bobby 5 ÍS 365 | 10.26 | 50 | 0.205 |
24 | Toppskarfur ÍS 417 | 10.77 | 76 | 0.141 |
23 | Már BA 406 | 10.78 | 60 | 0.179 |
22 | Bobby 15 ÍS 375 | 10.83 | 50 | 0.216 |
21 | Kría ÍS 411 | 10.87 | 81 | 0.134 |
20 | Bobby 3 ÍS 363 | 11.10 | 52 | 0.214 |
19 | Bobby 11 ÍS 371 | 11.18 | 49 | 0.228 |
18 | Lundi ÍS 406 | 11.58 | 81 | 0.143 |
17 | Stuttnefja BA 408 | 11.62 | 67 | 0.174 |
16 | Svanur BA 413 | 11.69 | 73 | 0.161 |
15 | Bobby 17 ÍS 377 | 11.73 | 54 | 0.217 |
14 | Kjói ÍS 427 | 12.08 | 79 | 0.153 |
13 | Fýll ÍS 412 | 12.13 | 76 | 0.159 |
12 | Teista ÍS 407 | 12.17 | 79 | 0.154 |
11 | Álka ÍS 409 | 12.26 | 85 | 0.144 |
10 | Langvía ÍS 416 | 12.40 | 71 | 0.174 |
9 | Svala ÍS 431 | 12.43 | 51 | 0.243 |
8 | Lómur ÍS 410 | 12.58 | 82 | 0.153 |
7 | Dílaskarfur ÍS 418 | 13.75 | 75 | 0.183 |
6 | Hávella ÍS 426 | 14.69 | 83 | 0.177 |
5 | Þórshani BA 411 | 15.21 | 69 | 0.221 |
4 | Álft ÍS 413 | 16.95 | 87 | 0.195 |
3 | Sendlingur ÍS 415 | 18.59 | 90 | 0.207 |
2 | Haftyrðill ÍS 408 | 19.72 | 97 | 0.203 |
1 | Bliki ÍS 414 | 22.82 | 90 | 0.254 |
Bliki ÍS mynd Arnbjörn Eiriksson