Spurning Dagsins ..

Hérna efst á aflafrettir er stika sem heitir "Flokkar" hægt er að fara þar og sjá alla flokkanna sem eru á aflafrettir


Ég skrifa inn í alla flokkanna nema einn.  enn það er flokkur sem heitir Skoðun Lesenda

Það hafa komið pistlar í þennan flokk af og til og lesendum aflafretta er frjálst að skrifa hvað sem er og fá að birta í þessum flokki

Jón Svansson sem gerir út Norðurljós NS setti stutta pælingu sem hann

kallar bara  Spurning dagsins


Eiga áhafnir að borga í nýjum skipum til að fyrirtæki í sjávarútvegi geti greitt sér arð .......!!!

Á arðurinn af fiskinum að flæða í gegnum samfélagið og skilja eftir blómlega byggð í

landinu eða á arðurinn að renna í skattaskjól á aflandseyum og skilja eftir hnýpna þjóð og innviði í molum ,

þetta er spurning dagsins


Norðurljós NS Mynd Egill Jónsson