Aflahæstu línubátarnir árið 2001
Allt árið 2025 þá var línubáta listann þannig að hann var með árunum
2001 og 2025 saman, til þess að sjá samanburðin,
ég mun birta listann yfir aflahæstu línubátanna árið 2025 á Aflafrettir.is líka
hérna er listinn yfir hæstu línubátanna árið 2001.
ekki allir bátar eru hérna , þeir bátar sem veiddu undir eitt þúsund tonn er ekki þarna
t.d Páll Jónsson GK, Geirfugl GK, KRistinn Lárusson GK, Hrafnseyri GK,( sami bátur) Sólrún EA, Fjölnir GK, Faxaborg SH og Gissur Hvíti SF
Tjaldur SH og Gissur Hvíti SF
Enginn bátur var með yfir 100 tonn í meðalafla árið 2001
nema Tjaldur SH, sem var með 120 tonn í meðalafla
en skýringinn á þessum mikla meðalafla hjá Tjaldi SH árið 2001, var sú að báturinn var að frysta aflann um borð
Gissur Hvíti SF var þó með mestan meðalafla árið 2001, 143 tonn, en hann landaði reyndar aðeins í fimm skipti
og eins og með Tjald SH, þá var Gissur Hvíti SF að frysta aflann um borð
Það voru alls fjórir bátar árið 2001 sem veiddu yfir 2000 tonn, og þar af voru tveir bátar með yfir 2300 tonna afla
Freyr GK og Kristrún RE
það munaði ekki nema um 20 tonnum á bátunum þar sem að Kristrún RE var aflahæsti línubáturinn árið 2001.

Kristrún RE mynd Jón Páll Ásgeirsson
| Sæti | Sknr | Nafn | Afli | Landanir | Meðalafli |
| 13 | 1125 | Melavík SF 34 | 1539.5 | 33 | 46.7 |
| 12 | 1591 | Núpur BA 69 | 1599.3 | 39 | 41.1 |
| 11 | 1063 | Kópur GK 175 | 1683.9 | 29 | 58.1 |
| 10 | 2354 | Valdimar GK 195 | 1686.1 | 31 | 54.4 |
| 9 | 2158 | Tjaldur SH 270 | 1793.9 | 15 | 119.6 |
| 8 | 972 | Sighvatur GK 57 | 1824.7 | 29 | 62.9 |
| 7 | 971 | Sævík GK 257 | 1870.3 | 33 | 56.6 |
| 6 | 972 | Garðey SF 22 | 1872.3 | 32 | 58.5 |
| 5 | 1052 | Albatros GK 60 | 1932.4 | 37 | 52.3 |
| 4 | 1023 | Skarfur GK 666 | 2070.3 | 40 | 51.7 |
| 3 | 237 | Hrungnir GK 50 | 2095.5 | 35 | 59.8 |
| 2 | 11 | Freyr GK 157 | 2335.6 | 38 | 61.5 |
| 1 | 256 | Kristrún RE 177 | 2357.5 | 42 | 56.2 |