Aflahæstu línubátarnir árið 2025

Þeim hefur fækkað mikið stóru línubátunum hérna við landið, og því var brugðið 


á það ráð allt árið 2025 að hafa línubátanna það ár og 24 ár aftur í tímann að vera saman á lista

semsé línubátar 2025 og 2001.

ég er búinn að birta lista yfir aflahæstu línubátanna árið 2001



 Aðeins fimm Línubátar voru á veiðum árið 2025 og allir nema Núpur BA fóru yfir fjögur þúsund tonna afla

Rifsnes SH átti ansi gott ár, lenti í þriðja sætinu með um 4356 tonna afla,

en það kemur kanski ekki á óvart að Vísis bátarnir voru hæstir.

Sighvatur GK og Páll Jónsson GK.

og það má bæta við að Vísir ehf var með tvo línubáta árið 2025 sem samtals veittu 9766 tonn

árið 2001 þá var Vísir ehf með átta línubáta sem samtals veiddu 13500 tonn, reyndar árið 2001 þá 

voru sumir af þessum átta bátum sem réru aðeins hluta af árinu

Páll Jónsson GK átti ansi gott ár því að aflinn hjá honum fór yfir fimm þúsund tonnin

eða rétt skreið fyrir fimm þúsund tonnin.  

Bæði Sighvatur GK og Páll Jónsson GK náðu báðir að koma með mest hátt í 160 tonn í land í einni löndun

Páll Jónsson GK aflahæsti línubáturinn árið 2025

Páll Jónsson GK mynd Gísli Reynisson